Enski boltinn

Chelsea hefur ekki boðið í Kaka

Elvar Geir Magnússon skrifar
Kaka á æfingu brasilíska landsliðsins.
Kaka á æfingu brasilíska landsliðsins.

AC Milan segir ekkert til í þeim sögusögnum að Chelsea hafi gert tilboð í brasilíska snillinginn Kaka. Slúðurblöð á Englandi hafa sagt frá því að Chelsea hafi verið með 100 milljóna punda boð í burðarliðnum.

Adriano Galliano, varaforseti AC Milan, segir þessar fréttir einfaldlega ekki réttar. „Real Madrid er eina liðið sem hefur haft samband. Við svöruðum þeim samstundis að leikmaðurinn væri ekki til sölu," sagði Adriano Galliani.

 

Kaka er samningsbundinn AC Milan til 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×