Enski boltinn

England við það að jafna markamet Spánar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Michael Owen í leik með enska landsliðinu.
Michael Owen í leik með enska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images

Enska landsliðið hefur unnið síðustu fimm leiki sína í undankeppni EM 2008 með markatölunni 3-0. Ef liðið skorar að minnsta kosti þrjú mörk gegn Rússum á morgun mun liðið hafa jafnað markamet Spánar frá árinu 1999.

Þá höfðu Spánverjar skorað þrjú mörk eða meira í sex leikjum í undankeppni EM 2000.

Englendingar hafa einnig haldið hreinu í sex leikjum í röð í undankeppninni en Grikkir eiga það met. Þeir héldu í hreinu í níu leikjum í röð þar til Tyrkir skoruðu eitt mark í 4-1 sigri Grikkja í október árið 2002.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×