Enski boltinn

Barist um bílnúmer

Elvar Geir Magnússon skrifar

Síðar í þessum mánuði gefst stuðningsmönnum West Ham á Englandi kostur á að eignast bílnúmerið "WE57 HAM". Bílnúmerið fer á uppboð og er talið líklegt að það verði dýrasta opinbera fótbolta-bílnúmerið á Englandi.

Upphafsboð í þetta bílnúmer verður um 500 þúsund íslenskar krónur. Dýrasta opinbera bílnúmerið til þessa er "AR53 NAL" sem selt var á um 4,5 milljónir króna. Einkanúmer eins og "1 UTD" er þó talið hafa verið keypt á enn hærri upphæðir.

Eftir tvo tapleiki í röð er spurning hvort einhver stuðningsmaður West Ham skelli sér frekar á bílnúmerið "LOS 3R" sem einnig fer á uppboð síðar í þessum mánuði. Upphafsboð í það er um 100 þúsund krónur.

Tíu dýrustu fótbolta-bílnúmerin:

1 - AR53 NAL (4,5 milljónir)

2 - V1 LLA (4,3 milljónir)

3 - ALB 10N (2,4 milljónir)

4 - DER 8Y (1,8 milljón)

5 - S41 NTS (1,4 milljón)

6 - PRE 570N (1,1 milljón)

7 - 1 WBA (1 milljón)

8 - W1 GAN (950 þúsund)

9 - EVR 70N (800 þúsund)

10 - S9 URS (570 þúsund)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×