Erlent

Vilja skaðabætur fyrir sjórán

Áhöfn Danica White laus úr gíslingu.
Áhöfn Danica White laus úr gíslingu. MYND/AP

Danska sjómannasambandið krefst þess að eigendur fraktskipsins Danica White greiði þremur dönskum sjómönnum skaðabætur vegna tjóns sem þeir urður fyrir þegar voru teknir í gíslingu í Sómalíu í sumar. Krefst sambandið alls um 18 milljónir króna í bætur.

Sjóræningar réðust á skipið undan austurströnd Sómalíu í júní og héldu fimm manna áhöfn þess í gíslingu í tæpa þrjá mánuði. Að mati danska sjómannasambandsins bera eigendur skipsins ábyrgð á mistökum skipstjórans sem ollu því að sjóræningjarnir náðu að komast um borð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×