Erlent

Sprengja sprakk á Spáni

Öflug sprengja sprakk við lögreglustöð í bænum Zarautz í baskahéruðunum á Spáni í morgun. Engan sakaði í sprengingunni en lögreglustöðin skemmdist mikið. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á verknaðinum en talið er næsta víst að aðskilnaðarsamtök baska, ETA, standi á bak við hann.

Franska lögreglan handtók í gær 13 menn grunaða um að standa á bak við sprengiárás í baskahéruðum í suðurhluta Frakklands í fyrra. Fyrr í þessum mánuði hétu ETA-meðlimir því að halda áfram sprengjuárásum á Spáni eftir að friðarviðræður þeirra við stjórnvöld þar í landi runnu út í sandinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×