Erlent

Enn leitað að farþegaflugvélinni í Kamerún

Björgunarsveitir leita enn farþegaflugvélar sem talið er að hafi farist í Kamerún í gær. Eitt hundrað og fjórtán manns voru um borð í vélinni, sem hefur þrátt fyrir mikla leit hefur ekki enn tekist að finna.

Leitarsvæðið er skógi vaxið og mjög erfitt yfirferðar. Úrhellisrigning og þoka hafa einnig gert leitarmönnum erfitt fyrir en mikil rigning var þegar slysið átti sér stað. Flugvélin var á leið frá Douala í Kamerún til Nairobi höfuðborgar Kenýu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×