Erlent

Forseti Ekvador fær aukin völd

AFP

Rafael Correa, forseti Ekvador segist vilja allsherjar endurbætur á stjórnmálum landsins. Hann sigraði með yfirburðum í kosningum um ákvæði sem veitir honum heimild til að svipta þing völdum ef það gerist uppvíst um spillingu. Þegar búið er að telja um fimmtung atkvæða hafa 83 prósent samþykkt tillöguna. Correa er vinstrisinnaður og einn nánasti stuðningsmaður Hugo Chavez, forseta Venesúela. Hann hefur sagst ætla að beita ákvæðinu í þeim tilgangi að koma á raunverulegu fulltrúalýðræði í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×