Erlent

Tvær milljónir Kínverja flýja heimili sín

Kínverjar búa sig undir hið versta.
Kínverjar búa sig undir hið versta. MYND/Getty

Rúmlega tvær milljónir íbúa Sjanghæ og nærliggjandi svæða hafa þurft að yfirgefa heimili sín í dag. Fellibylurinn Wipha skellur á svæðinu á morgun en sérfræðingar óttast að stormurinn sé sá versti í áratug.

Miklar rigningar í dag urðu til þess að loka þurfti skólum og flugumferð raskaðist. Yfirvöld segja að svo geti farið að loka þurfi kauphöllinni í Sjanghæ á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×