Enski boltinn

Jói Kalli ekki í hópnum hjá Burnley

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhannes Karl hefur lítið fengið að spila hjá Burnley að undanförnu.
Jóhannes Karl hefur lítið fengið að spila hjá Burnley að undanförnu. Nordic Photos / Getty Images

Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki í leikmannahópi Burnley sem gerði markalaust jafntefli við Sheffield United í ensku B-deildinni í dag.

Jóhannes Karl kom síðast við sögu hjá liðinu er liðið gerði 2-2 jafntefli við Barnsley. Þá kom hann inn á sem varamaður og spilaði síðustu 20 mínútur leiksins. Leikurinn var þann 22. september.

Burnley er í þrettánda sæti deildarinnar með átján stig eftir þrettán leiki. Watford er á toppnum með 32 stig og hefur fimm stiga forystu á Bristol City sem er í öðru sæti. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×