Þessir styðja ráðningu Capello 13. desember 2007 17:10
Fjöldi leikmanna og knattspyrnustjóra hafa nú tjáð sig um fyrirhugaða ráðningu Fabio Capello í starf þjálfara enska landsliðsins. Vísir skoðaði hvað þessir menn höfðu að segja um ítalska þjálfarrann. Gianfranco Zola: "Jafnvel þó Jose Mourinho hafi verið inni í myndinni, held ég að Capello sé enn hæfari þjálfari ef eitthvað er og þetta verður gríðarleg áskorun fyrir hann." Sven-Göran Eriksson: "Fabio Capello er skotheldur kostur í starfið. Ég hef þekkt hann lengi og hann hefur það sem til þarf til að stýra enska landsliðinu til sigurs á stórmóti." Claudio Ranieri: "Capello hefur hæfileika til að velja bestu mennina í liðið hverju sinni og hann velur þá leikmenn sem ná best saman. Það hljómar einfalt, en liðið er mikilvægara en einstaklingarnir." Dino Zoff: "Englendingar geta nú farið að láta sig dreyma um að vinna eitthvað aftur því Capello mun koma þeim í bestu aðstöðu til þess sem þeir hafa verið í lengi - betri en Sven-Göran Eriksson." Arrigo Sacchi: "Capello er kjörinn í þetta starf. Ef þetta enska lið getur unnið eitthvað á annað borð, er Capello maðurinn til að fá það til að gera það." Ruud Gullit: "Capello er ekki í þessu til að skemmta fólki heldur til þess að vinna. Hann hlær ekki mikið og er fýldur, en hann veit hvað hann vill. Þú verður að gera hlutina eins og hann segir þér að gera þá - annars færðu hárblástur." Arsene Wenger: "Ég hef þekkt Fabio lengi og hann er fyrirtaks möguleiki í þetta starf. Menn þurfa ekki að hafa áhyggjur af tæknilegu hliðinni hjá honum og svo er hann frábær karakter og sterkur maður." Sir Alex Ferguson: "Í hinum fullkomna heimi hefði verið ráðinn Englendingur í starfið því það er það sem allir vilja. En það sem er mikilvægast fyrir landsliðið er að finna hæfasta þjálfarann og þar eru takmarkaðir valkostir á Englandi." Clarence Seedorf: "Enska landsliðið á góða leikmenn en þeir hafa ekki verið að ná þeim árangri sem menn óskuðu. Capello veit þetta og því er starfið honum mikil áskorun. Hann á eftir að gera hörkulið úr þeim efnivið sem hann hefur."
Enski boltinn Mest lesið Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Enski boltinn „Ég hélt að við værum komin lengra“ Enski boltinn „Eiginlega alveg viss“ um að Rashford megi spila á morgun Fótbolti „Betra er seint en aldrei“ Enski boltinn Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Körfubolti Villareal vann í endurkomu Cazorla og frumraun Partey Fótbolti Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Enski boltinn ÍBV segir tvær hliðar á málinu og óskar Kára velfarnaðar Handbolti Kristall farinn að skora aftur eftir meiðslin Fótbolti Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég hélt að við værum komin lengra“ „Betra er seint en aldrei“ Endurkomusigur í stórskemmtilegum opnunarleik Opnunarleikurinn var stöðvaður vegna kynþáttaníðs Aston Villa sektað og bannað að nota marga bolta Liverpool kaupir ungan ítalskan miðvörð Brentford að slá félagaskiptametið Enska augnablikið: Hamingjureiturinn Stórkostleg tölfræði Salah í fyrsta leik Fjölskylda Jota á Anfield í kvöld „Maður er búinn að vera á nálum“ Spurningar um Isak tóku yfir fundinn Gummi Ben og Hjörvar Hafliða fóru að rífast Enska augnablikið: Eftirminnilegasta lýsing Íslandssögunnar Nýr framherji Man. United treður með miklum tilþrifum í körfuna „Gefa áhorfendum innsýn í það sem sérfræðingarnir gera“ Dagskráin: Fyrsti leikur í enska boltanum Gervigreindin spáir í fyrstu umferðina Sjáðu upphitunarþátt fyrir enska boltann í heild Xhaka gerður að fyrirliða tveimur vikum eftir að hann var keyptur Enska augnablikið: Englar og djöflar Leoni færist nær Liverpool Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Willum lagði upp sigurmark Birmingham Sjá meira