Upphitun fyrir leiki helgarinnar 21. september 2007 23:21 Avram Grant mætir með Chelsea á Old Trafford á sunnudaginn NordicPhotos/GettyImages
Keppni í ensku úrvalsdeildinni skiptist jafnt á laugardag og sunnudag þar sem hápunktur helgarinnar verður fyrsti leikur Avram Grant með Chelsea þar sem liðið sækir Manchester United heim á Old Trafford. Fréttir af skyndilegu brotthvarfi Jose Mourinho frá Stamford Bridge í vikunni hafa í raun varpað skugga á þennan stórleik á sunnudaginn, en það verður mjög forvitnilegt að sjá hvernig Grant tekst til við að berja lið sitt saman fyrir þennan erfiða leik. Fimm leikir fara fram á laugardag þar sem grannarnir í norðvestrinu Middlesbrough og Sunderland leiða saman hesta sína. Arsenal situr í efsta sæti deildarinnar og sækir nýliða Derby heim, Liverpool tekur á móti nýliðum Birmingham, Reading tekur á móti Wigan sem verður án Emile Heskey og þá tekur Fulham á móti Manchester City í hádegisleiknum. Á sunnudaginn fara nokkrir af leikmönnum West Ham á kunnuglegar slóðir þegar liðið sækir Newcastle heim. Everton reynir að rífa sig upp eftir vonbrigðin í Evrópukeppninni með heimsókn til Aston Villa og þá er Blackburn líka að reyna að skafa af sér Evróputimburmenn þar sem það tekur á móti Portsmouth. Tottenham náði sér heldur á strik í Evrópukeppninni í vikunni með öruggum 6-1 sigri, en ef marka má viðureignir liðanna við Bolton á útivell síðustu ár er hætt við því að liðið komi þar harkalega niður á jörðina. Rúsínan í pylsuendanum er svo risaslagur Manchester United og Chelsea þar sem United stefnir á enn einn 1-0 sigurinn í röð og gestirnir verða með nýjan stjóra og engan Lampard og engan Drogba. Laugardagur: Arsenal - Derby Arsenal hefur fengið vítaspyrnu í fjórum síðustu leikjum sínum í röð á Emirates og Derby hefur aðeins skorað þrjú mörk í síðustu níu úrvalsdeildarleikjum sínum á útivelli gegn Arsenal. Fulham - Man City Fulham hefur kastað frá sér 11 stigum eftir að hafa verið komið í aðstöðu til að vinna leiki á leiktíðinni - meira en nokkurt annað lið. Síðustu fimm leikir Man City í úrvalsdeildinni hafa endað á markatölunni 1-0. Liverpool - Birmingham Liverpool hefur bara fengið á sig mörk úr vítaspyrnum það sem af er leiktíðinni og Birmingham hefur enn ekki tekist að skora mark á Anfield í sögu úrvalsdeildarinnar. Middlesbrough - Sunderland Middlesbrough hefur skoraði mark í 14 af síðustu 15 leikjum sínum á heimavelli í deildinni. Sunderland hefur mistekist að skora í 5 af síðustu 7 leikjum sínum við Boro í deildinni. Reading - Wigan Reading hefur aðeins gert jafntefli í einum af síðustu 19 heimaleikjum sínum í deildinni. Wigan hefur fengið þrjár vítaspyrnur það sem af er tímabilinu -hefur skorað úr þeim öllum - og það voru þrír mismunandi leikmenn sem gerðu það. Sunnudagur: Aston Villa - Everton Villa hefur ekki tapað tveimur leikjum í röð í deildinni á árinu 2007 og Everton hefur aðeins unnið einn leik á Villa Park frá stofnun úrvalsdeildarinnar. Blackburn - Portsmouth Blackburn hefur fengið dæmdar á sig 96 aukaspyrnur í deildinni - mest allra liða - þrátt fyrir að hafa leikið einum leik færra en flest liðin í deildinni. Portsmouth hefur aðeins unnið einn af síðustu 19 útileikjum sínum í deildinni. Bolton - Tottenham Sjö af þeim ellefu mörkum sem Bolton hefur fengið á sig í deildinni til þessa hafa verið skoruð með vinstri fæti. Tottenham hefur fengið á sig fimm mörk utan teigs til þessa - sem er mest í deildinni. Liðið fékk líka langflest mörk í deildinni á sig utan teigs á síðustu leiktíð. Manchester United - Chelsea United hefur tekið flest skot á markið í deildinni - 87, en aðeins Reading hefur skorað færri mörk í deildinni - 3 mörk alls. Chelsea hefur aðeins mistekist að skora í einum af síðustu 12 leikjum sínum á Old Trafford. Newcastle - West Ham Michael Owen hefur skorað 10 mörk í 10 úrvalsdeildarleikjum sínum gegn West Ham á ferlinum. West Ham hefur aldrei unnið fimm leiki í röð á útivelli í úrvalsdeildinni. Newcastle hefur ekki tapað heima á leiktíðinni en West Ham er eina liðið í deildinni sem hefur ekki fengið á sig mark á útivelli.
Enski boltinn Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Styrkir til VÍK Sport „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn bjargaði leikmanni Fylkis | Myndir Íslenski boltinn Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Supercross Atlanta úrslit. Sport Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Fleiri fréttir Barry bjargaði stigi fyrir Everton Ekki gerst hjá Arsenal í átján ár Sjáðu draumamark Dorgu og öll hin í sigri United á Arsenal Varamaðurinn tryggði United sigur gegn Arsenal Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Van Dijk segir að það hafi „klárlega verið brotið á sér“ í sigurmarkinu „Sigurmark undir lokin er fullkomið fyrir okkur“ Liverpool-vandræðin halda áfram og Bournemouth með sigurmark í blálokin Stórbrotið sigurmark hjá Harry Wilson Haaland fékk smá hvíld í kærkomnum sigri City Hömruðu meðan járnið var heitt í sigri gegn Sunderland Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Sjá meira