Erlent

Aukinn kvíði almennings

Sjöundi hver Bandaríkjamaður sagðist vilja að bandarískir hermenn yrðu kallaðir heim innan árs.
Sjöundi hver Bandaríkjamaður sagðist vilja að bandarískir hermenn yrðu kallaðir heim innan árs. MYND/AP

Bandaríkjamenn hafa vaxandi áhyggjur af utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Átta af hverjum tíu Bandaríkjamönnum telja að heimurinn sé að verða hættulegri fyrir Bandaríkjamenn og tæpur helmingur segir heiminn að verða „miklu hættulegri“. Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum segja utanríkisstefnu Bandaríkjanna „á rangri leið“ samkvæmt nýrri könnun sem birt í tímaritinu Foreign Affairs.

Könnunin var unnin í mars og febrúar og er sú fjórða sem stofnunin Public Agenda gerir á hálfs árs fresti. Svör voru greind út frá sérstökum kvíðastuðli á bilinu 0 til 200 og mældist kvíðinn 137 stig í þessari nýjustu könnun sem er hækkun um sjö stig frá síðustu könnun frá því í september.

„Kvíðastuðullinn er að færast nær 150 stiga markinu, „hættusvæðinu“, sem fyrir mér myndi vera merki fullkomins vantrausts meðal almennings,“ sagði einn rannsakenda, Daniel Yankelovich, og stjórnarformaður Public Agenda. Næstum sex af hverjum tíu Bandaríkjamönnum segjast vantreysta stjórnvöldum til að segja sannleikann um utanríkismál. Það er tíu prósenta aukning síðan í september.

Rúm 70 prósent sögðu Bandaríkin ekki standa sig vel í leiðtogahlutverki við að skapa aukinn frið og velmegun í heiminum. Þar af sagði rúmlega þriðjungur að Bandaríkin stæðu sig beinlínis illa við það.

Tæp 70 prósent töldu að fólk í öðrum heimshlutum sæi Bandaríkin í neikvæðu ljósi.

Rúm 80 prósent telja að setningin „hernaðaraðgerðir ætti aðeins að hefja með stuðningi bandamanna“ ætti að vera mikilvæg í utanríkisstefnu Bandaríkjanna.

Yfir 80 prósent sögðust hafa áhyggjur af möguleikanum á að óvinveittar þjóðir yrðu kjarnorkuveldi. 75 prósent sögðu að það að hamla á móti útbreiðslu kjarnavopna ætti að vera mjög mikilvægt í utanríkisstefnu Bandaríkjanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×