Aukinn kvíði almennings 5. apríl 2007 08:00 Sjöundi hver Bandaríkjamaður sagðist vilja að bandarískir hermenn yrðu kallaðir heim innan árs. MYND/AP
Bandaríkjamenn hafa vaxandi áhyggjur af utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Átta af hverjum tíu Bandaríkjamönnum telja að heimurinn sé að verða hættulegri fyrir Bandaríkjamenn og tæpur helmingur segir heiminn að verða „miklu hættulegri“. Tveir af hverjum þremur Bandaríkjamönnum segja utanríkisstefnu Bandaríkjanna „á rangri leið“ samkvæmt nýrri könnun sem birt í tímaritinu Foreign Affairs. Könnunin var unnin í mars og febrúar og er sú fjórða sem stofnunin Public Agenda gerir á hálfs árs fresti. Svör voru greind út frá sérstökum kvíðastuðli á bilinu 0 til 200 og mældist kvíðinn 137 stig í þessari nýjustu könnun sem er hækkun um sjö stig frá síðustu könnun frá því í september. „Kvíðastuðullinn er að færast nær 150 stiga markinu, „hættusvæðinu“, sem fyrir mér myndi vera merki fullkomins vantrausts meðal almennings,“ sagði einn rannsakenda, Daniel Yankelovich, og stjórnarformaður Public Agenda. Næstum sex af hverjum tíu Bandaríkjamönnum segjast vantreysta stjórnvöldum til að segja sannleikann um utanríkismál. Það er tíu prósenta aukning síðan í september. Rúm 70 prósent sögðu Bandaríkin ekki standa sig vel í leiðtogahlutverki við að skapa aukinn frið og velmegun í heiminum. Þar af sagði rúmlega þriðjungur að Bandaríkin stæðu sig beinlínis illa við það. Tæp 70 prósent töldu að fólk í öðrum heimshlutum sæi Bandaríkin í neikvæðu ljósi. Rúm 80 prósent telja að setningin „hernaðaraðgerðir ætti aðeins að hefja með stuðningi bandamanna“ ætti að vera mikilvæg í utanríkisstefnu Bandaríkjanna. Yfir 80 prósent sögðust hafa áhyggjur af möguleikanum á að óvinveittar þjóðir yrðu kjarnorkuveldi. 75 prósent sögðu að það að hamla á móti útbreiðslu kjarnavopna ætti að vera mjög mikilvægt í utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Metfjöldi gesta tvo daga í röð Innlent Íranir mótmæla á ný Erlent Hvöss austanátt fylgir alldjúpri lægð í dag Veður Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Erlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Fleiri fréttir Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Sjá meira