Þrettán daga milliríkjadeilu Írana og Breta lokið 5. apríl 2007 03:30 Vel fór á með bresku sjóliðunum og Ahmadinejad forseta á tröppum írönsku forsetahallarinnar eftir að hann tilkynnti um náðun þeirra. MYND/AFP
Forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad, tilkynnti í gær að hann hefði náðað bresku sjóliðana fimmtán, sem hafa verið í haldi Írana síðan 23. mars, og að þeim yrði sleppt. Sagði hann að um páskagjöf til Breta væri að ræða. Eftir að hafa tilkynnt þetta tók Ahmadinejad í höndina á sjóliðunum, sem brostu og þökkuðu honum fyrir lausn sína. Faðir eins hermannanna greindi frá því síðar um daginn að sjóliðarnir yrðu fluttir til Bretlands í dag. Forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, fagnaði lausn hermannanna og sagði Breta „bera engan kala“ til írönsku þjóðarinnar. Blair sagði að bresk stjórnvöld hefðu verið staðföst en haldið ró sinni í deilunni þar sem ekki hefði verið gengið til samninga né gripið til róttækra aðgerða. Blair þakkaði bandamönnum Bretlands í Evrópu, öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og Mið-Austurlöndum fyrir hjálp þeirra við að fá hermennina lausa. Lausn sjóliðanna bindur enda á þrettán daga deilu milli Írans og Bretlands. Bresku sjóliðarnir voru handteknir þegar þeir voru við eftirlitsferð í indversku kaupskipi sem var grunað um smygl á bílum. Írönsk stjórnvöld héldu því fram að sjóliðarnir hefðu verið staddir ólöglega inni í íranskri lögsögu og hafa krafist þess að bresk stjórnvöld biðjist afsökunar á því. Bresk stjórnvöld hafa hins vegar sagt sjóliðana hafa verið stadda inni í íraskri lögsögu í umboði Sameinuðu þjóðanna og hafa krafist skilyrðislausrar lausnar þeirra. Myndbönd þar sem nokkrir sjóliðanna játuðu og báðust afsökunar á að hafa verið ólöglega inni í íranskri lögsögu voru birt í írönsku sjónvarpi. Bretar fordæmdu þessar myndbirtingar og sögðu þær viðbjóðslegan áróður íranskra stjórnvalda. Ahmadinejad bað Blair um að „refsa“ ekki sjóliðunum fyrir játningar sínar. Einnig gagnrýndi hann Breta fyrir að senda móðurina Faye Turney, eina kvenkyns sjóliðann í hópnum, til Persaflóa. Bretar virtu með því ekki fjölskyldugildin.
Mest lesið Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Íranir mótmæla á ný Erlent Metfjöldi gesta tvo daga í röð Innlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Innlent Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Innlent Fleiri fréttir Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Sjá meira