Erlent

Þrettán daga milliríkjadeilu Írana og Breta lokið

Vel fór á með bresku sjóliðunum og Ahmadinejad forseta á tröppum írönsku forsetahallarinnar eftir að hann tilkynnti um náðun þeirra.
Vel fór á með bresku sjóliðunum og Ahmadinejad forseta á tröppum írönsku forsetahallarinnar eftir að hann tilkynnti um náðun þeirra. MYND/AFP

Forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad, tilkynnti í gær að hann hefði náðað bresku sjóliðana fimmtán, sem hafa verið í haldi Írana síðan 23. mars, og að þeim yrði sleppt. Sagði hann að um páskagjöf til Breta væri að ræða. Eftir að hafa tilkynnt þetta tók Ahmadinejad í höndina á sjóliðunum, sem brostu og þökkuðu honum fyrir lausn sína.

Faðir eins hermannanna greindi frá því síðar um daginn að sjóliðarnir yrðu fluttir til Bretlands í dag.

Forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, fagnaði lausn hermannanna og sagði Breta „bera engan kala“ til írönsku þjóðarinnar. Blair sagði að bresk stjórnvöld hefðu verið staðföst en haldið ró sinni í deilunni þar sem ekki hefði verið gengið til samninga né gripið til róttækra aðgerða.

Blair þakkaði bandamönnum Bretlands í Evrópu, öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og Mið-Austurlöndum fyrir hjálp þeirra við að fá hermennina lausa.

Lausn sjóliðanna bindur enda á þrettán daga deilu milli Írans og Bretlands. Bresku sjóliðarnir voru handteknir þegar þeir voru við eftirlitsferð í indversku kaupskipi sem var grunað um smygl á bílum. Írönsk stjórnvöld héldu því fram að sjóliðarnir hefðu verið staddir ólöglega inni í íranskri lögsögu og hafa krafist þess að bresk stjórnvöld biðjist afsökunar á því. Bresk stjórnvöld hafa hins vegar sagt sjóliðana hafa verið stadda inni í íraskri lögsögu í umboði Sameinuðu þjóðanna og hafa krafist skilyrðislausrar lausnar þeirra.

Myndbönd þar sem nokkrir sjóliðanna játuðu og báðust afsökunar á að hafa verið ólöglega inni í íranskri lögsögu voru birt í írönsku sjónvarpi. Bretar fordæmdu þessar myndbirtingar og sögðu þær viðbjóðslegan áróður íranskra stjórnvalda.

Ahmadinejad bað Blair um að „refsa“ ekki sjóliðunum fyrir játningar sínar. Einnig gagnrýndi hann Breta fyrir að senda móðurina Faye Turney, eina kvenkyns sjóliðann í hópnum, til Persaflóa. Bretar virtu með því ekki fjölskyldugildin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×