Enski boltinn

Video: Fáránlegt mark í SuperLiga

De Rosario á varla eftir að skora skondnara mark á ferlinum
De Rosario á varla eftir að skora skondnara mark á ferlinum

Dwayne De Rosario, leikmaður Houston Dynamo, skoraði eitt fáránlegasta mark sem sést hefur í undanúrslitaleik SuperLiga, bandarísku bikarkeppninnar, á milli Pachucha og Houston Dynamo.

Á einhvern furðulegan hátt tókst honum að sparka boltanum í andlitið á sér og þaðan í markið. Mark De Rosario var fyrsta mark leiksins sem endaði 2-2 og fór í vítaspyrnukeppni.

Sjón er sögu ríkari. Sjáðu markið hér




Fleiri fréttir

Sjá meira


×