Erlent

Fimm enn saknað

Minningarathöfn um þá sem létust og er saknað eftir að norska dráttarbátnum Bourbon Dolphin hvolfdi á fimmtudagskvöld, fór fram í gær, sunnudag.

Fjölskyldur þeirra sem létust, ásamt þeim sjö úr áhöfn bátsins sem komust lífs af, tóku þátt í athöfninni. Hún fór fram á slysstað við strendur Hjaltlandseyja.

Björgunarstarf hefur gengið erfiðlega sökum veðurs og þurftu kafarar frá að hverfa við leit í flakinu.

Með bátnum fórust þrír skipverjar og fimm er enn saknað. Talið er að þeir séu látnir og að lík þeirra séu um borð í bátnum.

Báturinn var gerður út frá Álasundi í Noregi. Orsök slyssins er enn óljós að sögn þarlendra yfirvalda. Meðal þeirra sem er saknað er fjórtán ára drengur sem var í starfskynningu með föður sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×