Erlent

Ekki samið við Bhutto

Musharraf hershöfðingi. Forseti Pakistans ekki í sáttahug.
Musharraf hershöfðingi. Forseti Pakistans ekki í sáttahug. MYND/AP

Pervez Musharraf, forseti Pakistans, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann neitar því að stutt sé í samning við stjórnarandstöðuna sem feli meðal annars í sér að Benazir Bhutto, fyrrverandi forseti, geti snúið heim úr útlegð.

Í fjölmiðlum höfðu birst fréttir um að slíkur samningur væri í vændum. Tilgangur Musharrafs væri sá að draga úr andstöðu við sig, sem harðnaði mjög eftir að hann rak dómara úr hæstarétti landsins.

Bhutto hefur verið í útlegð síðan 1999 en hún er enn leiðtogi stærsta stjórnarandstöðuflokksins í Pakistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×