Erlent

Bannar hermönnum að tjá sig um fangavist

Á flugvellinum í Íran. Bresku fangarnir fimmtán eftir að Íranar höfðu ákveðið að láta þá lausa.fréttablaðið/AP
Á flugvellinum í Íran. Bresku fangarnir fimmtán eftir að Íranar höfðu ákveðið að láta þá lausa.fréttablaðið/AP

Varnarmálaráðherra Bretlands, Des Browne, lagði í gær bann við því að breskir hermenn seldu fjölmiðlum sögur af störfum sínum. Þetta var gert eftir að ráðuneytið var gagnrýnt harðlega fyrir að leyfa sjóliðunum fimmtán sem voru í haldi Írana í tvær vikur að ræða við fjölmiðla um reynslu sína gegn greiðslu. Tveimur þeirra tókst að gera það áður en það var bannað í gær.

Browne sagði að það hefði ekki skilað tilætluðum árangri að leyfa hermönnunum að tjá sig, en það var gert vegna þess að talið var að hægt væri að hafa betri hemil á fréttaflutningnum fengju sjóliðarnir að segja sögu sína sjálfir.

Bresku dagblöðin Sun og Daily Mirror birtu í gær viðtöl við tvo af bresku sjóliðunum.

Faye Turney, 25 ára liðsforingi og eina konan í hópi fanganna, segist í viðtalinu hafa staðið í þeirri trú að fjórtán félagar hennar hefðu verið sendir heim og hún væri ein eftir í haldi Írana. Hún segist hafa fengið klukkutíma til að hugsa sig um hvort hún vildi gera skriflega játningu, að öðrum kosti yrði hún kærð fyrir njósnir og þyrfti að dúsa í fangelsi árum saman.

Miklar deilur spruttu vegna ákvörðunarinnar um að heimila sjóliðunum að segja sögu sína.

„Ég tel það óheppilegt að varnarmálaráðuneyti skuli nota sjómennina og sjóliðana með þessum hætti,“ segir Patrick Cordingley, fyrrverandi herforingi. „Ráðuneytið notar þá nánast sem áróðurstæki og það virðist vera að hvetja okkur til að pirra okkur á Íran frekar en að halda áfram viðræðum.“

Hvorki fjölmiðlarnir né hermennirnir hafa gefið upp hve háar greiðslur þeir fengu fyrir að segja sögu sína, en Turney segist ekki hafa tekið hæsta tilboðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×