Talinn bareigandi í Nyakizu 10. apríl 2007 06:00 Finnar hafa handtekið mann sem grunaður er um að vera „Bareigandinn í Nyakizu“ og hafa staðið fyrir fjöldamorðum í Rúanda.
Maður frá Rúanda hefur verið handtekinn í Finnlandi grunaður um að hafa skipulagt og staðið fyrir þjóðarmorðum í Rúanda. Maðurinn, sem er 55 ára gamall, gekk undir heitinu „Bareigandinn í Nyakizu“ og er í alþjóðlegum mannréttindaskýrslum talinn ábyrgur fyrir einu af fyrstu fjöldamorðunum í Rúanda vorið 1994. Samkvæmt skýrslunum hefur maðurinn skipulagt þjálfun stríðsmanna, útvegað vopn og skipulagt fjöldamorð. Hann er baptistaprestur að starfi og hútúi frá Búrúndí að uppruna. Maðurinn kom til Rúanda árið 1972, þá 21 árs gamall, kvæntist þar tútsíkonu og stjórnaði flóttamannabúðum fyrir hútúa frá Búrúndí auk þess að reka bar. Finnlandssænska Borgåbladet segir að hann hafi komið til Finnlands árið 2003 og starfað með baptistum í Vaasa og Borgå. Þjóðarmorðin í Rúanda hófust þegar flugvél með forseta Rúanda og Búrúndí var skotin niður í byrjun apríl 1994. Viku síðar á Rúandamaðurinn að hafa tekið þátt í einum af fyrstu fjöldamorðunum í landinu þegar 21 tútsímaður var fluttur á bar hans að næturlagi. Vitni segist hafa séð þegar fjórir mannanna voru barðir til bana og líkunum kastað í klóakbrunn. Viku síðar á maðurinn svo að hafa leitt morð á heilu fjölskyldunum á Nyakizu-fjalli og síðan fylgt flóttamannastraumnum úr landi.
Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Innlent Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Innlent Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Erlent Reykur sást á flugvallarsvæðinu Innlent Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Fleiri fréttir Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins Sjá meira