Fáfræði réð ríkjum 10. apríl 2007 06:45 Ali Allawi Fyrrverandi varnarmálaráðherra Íraks vandar innrásarliðinu ekki kveðjurnar í nýrri bók. MYND/AFP „
Í staðinn fyrir sundrað og spillt ríki Saddams kom sundrað, óhagkvæmt, óhæft og spillt ríki hins nýja skipulags,“ segir Ali A. Allawi í nýútkominni 500 blaðsíðna bók sinni, Hernám Íraks. Allawi ætti að vita hvað hann segir því sjálfur var hann innanbúðarmaður í nýju stjórninni í Írak frá árinu 2003, ýmist viðskipta-, varnarmála- eða fjármálaráðherra. Hann fullyrðir nú að Bandaríkjamenn hafi staðið sig svo skelfilega að Írakar hafi upp til hópa „snúið baki við þeim sem ætluðu að frelsa þá“. Allawi er fyrstur ráðamanna í Írak til þess að skrifa bók um raunir Íraka undanfarin fjögur ár frá því Bandaríkjamenn og Bretar réðust inn í landið til að steypa Saddam Hussein af stóli. Nú er svo komið að einu bandamenn Bandaríkjanna í Írak eru þeir sem „reyna að hafa áhrif á valdakerfið til þess að þjóna sínum eigin þröngu hagsmunum. Það hefði getað verið öðru vísi“. Hann gagnrýnir jafnt Bandaríkjamenn sem Íraka og segir gerðir þeirra hvað eftir annað byggðar á „fáfræði“. Fyrst kom hin „gríðarlega fáfræði“ þeirra ráðamanna í Washington sem árið 2002 lögðu allt kapp á að fara í stríð án þess að hafa „minnstu hugmynd“ um raunveruleikann í Írak. „Þeir sem báru betra skynbragð á hlutina sáu strax að innrásin í Írak myndi rífa upp djúpar sprungur í írösku samfélagi.“ Eftir fylgdu svo „viðvaningsháttur og yfirgangshroki“ hernámsins á tímum bráðabirgðastjórnar bandaríska hershöfðingjans L. Pauls Bremer, þegar stórar ákvarðanir voru teknar án nokkurs samráðs við heimamenn. Allawi er ekki einn um að telja margar þessara ákvarðana mikil mistök. Meðal þeirra stærstu er sú ákvörðun að leysa upp íraska herinn, sem varð til þess að fyrrverandi hermenn gengu til liðs við uppreisnarsveitir gegn hernáminu. Önnur mistökin voru þau að reka flokksmenn úr Baath-flokki Saddams úr stjórnkerfinu, sem varð til þess að stjórn landsins var sett í hendur reynslulítilla manna. Allawi telur í bók sinni upp fleiri afdrifarík mistök bráðabirgðastjórnarinnar, svo sem áherslu á einkavæðingu atvinnulífsins sem varð til þess að „viðskiptaþrjótar“ frá dögum Saddams hafi lagt undir sig fyrirtækin í landinu. Sömuleiðis hafi bráðabirgðastjórnin haldið eldsneytisniðurgreiðslum Saddams, selt bensín á gjafverði og þannig þurrausið ríkissjóðinn.
Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Töluverður viðbúnaður vegna tilkynningar um kajak Innlent Á sjötta hundrað lentu í vandræðum Innlent Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Erlent Reykur sást á flugvallarsvæðinu Innlent Framtíð Framsóknar, afbrotatölfræði og vankantar á tryggingamarkaði Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Fleiri fréttir Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins Sjá meira