Erlent

Kjarnorkuummæli setja Olmert í vanda

Vel fór á með þeim Ehud Olmert og Angelu Merkel Þýskalandskanslara í Berlín í gær. Olmert fór annars fram á að Þjóðverjar notuðu viðskiptasambönd sín í Íran til að þrýsta á þarlend stjórnvöld að hlíta reglum alþjóðasamfélagsins um kjarnorkuáætlun þeirra.
Vel fór á með þeim Ehud Olmert og Angelu Merkel Þýskalandskanslara í Berlín í gær. Olmert fór annars fram á að Þjóðverjar notuðu viðskiptasambönd sín í Íran til að þrýsta á þarlend stjórnvöld að hlíta reglum alþjóðasamfélagsins um kjarnorkuáætlun þeirra. MYND/AP

Mismæli Ehuds Olmert, forsætisráðherra Ísraels, varðandi kjarnorkustefnu landsins í þýsku sjónvarpsviðtali sem sent var út í fyrradag, varð gagnrýnendum hans heima fyrir í gær tilefni fullyrðinga um að hann væri ekki hæfur til að gegna embættinu.

Í umræddu sjónvarpsviðtali á þýsku sjónvarpsstöðinni Sat-1, í tilefni af fyrstu opinberu heimsókn hans til Þýskalands sem hófst í gær, virtist Olmert telja Ísrael til kjarnorkuvígvæddra ríkja, en þótt talið sé víst að Ísraelar ráði yfir allstóru kjarnorkuvopnabúri hefur það verið ófrávíkjanleg stefna ísraelskra stjórnvalda í áratugi að viðurkenna hvorki né neita tilvist þessara vopna í landinu.

Olmert var í viðtalinu spurður út í köll íranskra ráðamanna eftir eyðingu Ísraels og hann svaraði að Ísrael hefði aldrei hótað því að eyða neinum.

„Íran hefur opinskátt hótað að þurrka Ísrael út af landakortinu,“ sagði Olmert. „Er hægt að segja að þetta sé á sama plani ef þú sækist eftir því að koma þér upp kjarnorkuvopnum, eins og Bandaríkin, Frakkland, Ísrael, Rússland.“

Fáeinum dögum áður hafði Robert Gates, verðandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, nefnt Ísrael sem kjarnorkuvígvætt ríki í vitnisburði fyrir varnarmálanefnd Bandaríkjaþings. Talsmenn Ísraelsstjórnar kvörtuðu yfir ummælunum.

Ummæli Olmerts voru á forsíðum blaða í Ísrael í gær og talsmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust afsagnar hans. En Olmert sagði í Berlín að ekkert hefði breyst, stefna Ísraels varðandi kjarnorkuvopn væri óbreytt.

„Ísrael hefur oft sagt, og ég sagði það líka í þýska sjónvarpsviðtalinu, að við ætlum okkur ekki að vera fyrsta ríkið í Miðausturlöndum sem kjarnorkuvígvæðist,“ sagði forsætisráðherrann eftir fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands.

Silvan Shalom, stjórnarandstöðuþingmaður Likud-flokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, sagði ummælin geta skaðað viðleitni Ísraels til að fá alþjóðasamfélagið til að aftra Írönum frá því að komast yfir kjarnorkuvopn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×