Kjarnorkuummæli setja Olmert í vanda 13. desember 2006 05:00 Vel fór á með þeim Ehud Olmert og Angelu Merkel Þýskalandskanslara í Berlín í gær. Olmert fór annars fram á að Þjóðverjar notuðu viðskiptasambönd sín í Íran til að þrýsta á þarlend stjórnvöld að hlíta reglum alþjóðasamfélagsins um kjarnorkuáætlun þeirra. MYND/AP
Mismæli Ehuds Olmert, forsætisráðherra Ísraels, varðandi kjarnorkustefnu landsins í þýsku sjónvarpsviðtali sem sent var út í fyrradag, varð gagnrýnendum hans heima fyrir í gær tilefni fullyrðinga um að hann væri ekki hæfur til að gegna embættinu. Í umræddu sjónvarpsviðtali á þýsku sjónvarpsstöðinni Sat-1, í tilefni af fyrstu opinberu heimsókn hans til Þýskalands sem hófst í gær, virtist Olmert telja Ísrael til kjarnorkuvígvæddra ríkja, en þótt talið sé víst að Ísraelar ráði yfir allstóru kjarnorkuvopnabúri hefur það verið ófrávíkjanleg stefna ísraelskra stjórnvalda í áratugi að viðurkenna hvorki né neita tilvist þessara vopna í landinu. Olmert var í viðtalinu spurður út í köll íranskra ráðamanna eftir eyðingu Ísraels og hann svaraði að Ísrael hefði aldrei hótað því að eyða neinum. „Íran hefur opinskátt hótað að þurrka Ísrael út af landakortinu,“ sagði Olmert. „Er hægt að segja að þetta sé á sama plani ef þú sækist eftir því að koma þér upp kjarnorkuvopnum, eins og Bandaríkin, Frakkland, Ísrael, Rússland.“ Fáeinum dögum áður hafði Robert Gates, verðandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, nefnt Ísrael sem kjarnorkuvígvætt ríki í vitnisburði fyrir varnarmálanefnd Bandaríkjaþings. Talsmenn Ísraelsstjórnar kvörtuðu yfir ummælunum. Ummæli Olmerts voru á forsíðum blaða í Ísrael í gær og talsmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust afsagnar hans. En Olmert sagði í Berlín að ekkert hefði breyst, stefna Ísraels varðandi kjarnorkuvopn væri óbreytt. „Ísrael hefur oft sagt, og ég sagði það líka í þýska sjónvarpsviðtalinu, að við ætlum okkur ekki að vera fyrsta ríkið í Miðausturlöndum sem kjarnorkuvígvæðist,“ sagði forsætisráðherrann eftir fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Silvan Shalom, stjórnarandstöðuþingmaður Likud-flokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, sagði ummælin geta skaðað viðleitni Ísraels til að fá alþjóðasamfélagið til að aftra Írönum frá því að komast yfir kjarnorkuvopn.
Mest lesið „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Gabríel Boama og yngri bróðir hans réðust á tvær konur og bróðirinn stakk pilt Innlent Bílvelta í Ártúnsbrekku Innlent Taki þátt í skipulagningu frá Litla-Hrauni Innlent Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Innlent „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Tók þrjátíu sekúndur að fara inn og út Innlent Fleiri fréttir Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Sjá meira