Erlent

Hermenn ræna völdum á Fiji

Frank Bainimarama, hershöfðingi, beitir hernum fyrir sig í valdaráni.
Frank Bainimarama, hershöfðingi, beitir hernum fyrir sig í valdaráni. MYND/AP
Vopnaðir hermenn reyna nú að ryðja sér leið inn á heimili forsætisráðherra Fiji-eyja í Kyrrahafi. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir vitnum. Forsætisráðherrann sagðist fyrr í kvöld óttast að valdarán væri í uppsiglingu þar sem herinn hefði ráðist inn í nokkrar lykilbyggingar og reist vegatálma á víð og dreif um höfuðborgina Suva.

"Þeir eru búnir að taka lögregluna úr umferð og nú ætla þeir að kyrkja ríkisvaldið," sagði Laiesenia Quarase, forsætisráðherra Fiji-eyja í kvöld. Stjórn hans var endurkjörin í maí og situr nú annað kjörtímabilið í röð.

Hershöfðinginn Frank Bainimarama hefur ítrekað hótað því að hann muni ræna völdunum af ríkisstjórninni vegna þess að hún sé spillt. Það yrði fjórða valdaránið á Fiji-eyjum síðan árið 1987.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×