Erlent

Sprengingar í flugeldagerð

Gríðarlegar sprengingar urðu í flugeldaverksmiðju í Sussex, sunnanvert á Englandi, upp úr hádegi í gær. Tugir slökkviliðsmanna börðust við eld í verksmiðjunni lengi dags og eitthvað af fólki slasaðist, sumt alvarlega.

„Þetta var eins og flugeldasýning með eld í miðjunni,“ sagði Richard Mitchell, þrítugur maður sem fylgdist með skammt frá. „Þetta var brjálæðislegt. Þetta gekk svona í um það bil hálftíma áður en aðeins dró úr þessu. Við sáum tíu eða tólf slökkviliðsbíla og fjóra eða fimm sjúkrabíla."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×