Erlent

Ástandið í Írak verra en borgarastyrjöld

MYND/AP

Kofi Annan, fráfarandi framkvæmdastjór Sameinuðu þjóðanna, segir ástandið í Írak mun verra en borgarastyrjöld. Hann segir jafnframt að líf meðaljónins í Íraks sé nú verra en þegar Saddam Hussein stjórnaði landinu.

Annan lætur af embætti framkvæmdastjóra í lok ársins eftir tíu ár í embætti og í viðtali við breska ríkisútvarpið segir hann sorglegt að honum hafi ekki tekist að koma í veg fyrir innrásina í Írak og að innrásin hafi verið mikið áfall fyrir starf Sameinuðu þjóðanna. Þá segir hann að ástandið í Miðausturlöndum valdi honum miklum áhyggjum.

Annan ræðir einnig um ástandið í Darfur-héraði í Súdan í viðtali við BBC og þar bendir hann á að þrátt fyrir að Sameinuðu þjóðirnar hafi heitið því að koma í veg fyrir að atbuðir á borð við þjóðarmorðin í Rúanda og Srebrenica endurtækju sig hafi ekki tekist að binda enda á átökin í Darfur, en þar hafa yfir 200 þúsund manns látist á þremur árum. „Það eru mikil vonbrigði og mjög sorglegt en við höfum hvorki úrræði né vilja til að takast á við ástandið," segir Annan.

Jafnframt lofaði hann því að reyna að leysa deiluna alveg fram á síðasta dag í embætti, en yfirböld í Súdan hafa neitað að hleypa friðargæsluliði frá Sameinuðu þjóðunum inn í landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×