Erlent

Pílagrímar streyma til Mekka

Gengið umhverfis helgidóminn í Mekka. Gífurlegur mannfjöldi safnast saman ár hvert í Mekka í Sádi-Arabíu þegar múslímar halda þangað í pílagrímaför sína. Í ár er reiknað með að þrjár milljónir manna leggi leið sína þangað.
Gengið umhverfis helgidóminn í Mekka. Gífurlegur mannfjöldi safnast saman ár hvert í Mekka í Sádi-Arabíu þegar múslímar halda þangað í pílagrímaför sína. Í ár er reiknað með að þrjár milljónir manna leggi leið sína þangað. MYND/AP

Í gær var fyrsti dagurinn í árlegri pílagrímagöngu múslíma til Mekka, sem stendur fram á mánudag. Pílagrímarnir gengu í gær, eins og gert er á hverju ári, þrettán kílómetra leið í gegnum eyðimerkurdal frá Mekka til Mína, allir íklæddir hvítum kyrtlum til þess að minna á að allir menn eru jafnir fyrir guði.

Búist er við að nærri þrjár milljónir múslíma leggi leið sína þangað í ár, þar af er tæpur helmingur frá Sádi-Arabíu en aðrir eru aðkomumenn víðs vegar að úr heiminum.

Fjöldinn er svo gífurlegur að oft stafar stórhætta af. Fyrir ári létust meira en 260 manns í troðningnum og hafa stjórnvöld í Sádi-Arabíu árum saman verið sökuð um að gæta ekki nógu vel að öryggi pílagrímanna.

Nú í ár hafa þau hins vegar varið miklu fé til þess að bæta alla aðstöðu við hina helgu staði til þess að umferð hinna gangandi pílagríma gangi greiðar fyrir sig. Þá hafa meira en 30 þúsund lögreglumenn verið sendir á vettvang og ferðalangarnir eru sérstaklega beðnir um að hafa engan farangur með sér í gönguna, þar sem troðningurinn á síðasta ári hófst með því að nokkrir ferðamenn hrösuðu um farangur í mannfjöldanum.

Pílagrímaferð til Mekka er ein af fimm frumskyldum múslíma. Þeim ber að fara í slíka ferð að minnsta kosti einu sinni á ævinni, svo framarlega sem þeir hafa heilsu til þess og efni á því.

Pílagrímarnir dvelja í Mekka og nágrenni í nokkra daga og fylgja þar hefðum sem eru í mjög föstum skorðum. Í gær gengu þeir í kringum Kaaba, svarta kassalaga steinbyggingu sem er helgasti staður íslams. Gengið er sjö sinnum rangsælis í kringum Kaaba, þrisvar hratt og síðan fjórum sinnum á eðlilegum gönguhraða.

Í dag halda þeir frá Mekka til Mína þar sem þeir dveljast í stórum tjaldbúðum yfir nótt, og þaðan liggur leiðin síðan til fjallsins Arafat þar sem farið er með bænir.

Mesta hættan fyrir pílagrímana hefur orðið undir lok ferðarinnar þegar þeir safnast saman við þrjár steinsúlur í Mina til þess að kasta í þær grjóti og eru þá með táknrænum hætti að grýta djöfulinn.

Nú í ár er andrúmsloftið markað af áhyggjum múslíma af átökum í Írak, fyrir botni Miðjarðarhafs og nú síðast í Sómalíu. Spenna milli súnní-múslíma og sjía er mikil, einkum þó í Írak, en báðar þessar meginfylkingar sameinast í pílagrímaförinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×