Rajapakse var kjörinn forseti 19. nóvember 2005 05:15 Sigrinum fagnað. Auk þess að gleðjast yfir kosningasigrinum fagnaði Mahinda Rajapakse sextugsafmæli sínu í gær.
Mahinda Rajapakse forsætisráðherra bar sigur úr býtum í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu í fyrradag. Aðeins munaði tæpum tveimur prósentum á honum og helsta keppinauti hans. Kosningarnar gengu prýðilega á suðvestanverðri eynni þar sem kjörsókn var um 75 prósent. Á henni norðvestanverðri, þar sem Tamílar eru þorri íbúa, var annað uppi á teningnum því Tamíltígrarnir svonefndu hvöttu fylgismenn sína til að sniðganga kosningarnar. Í borginni Jaffna neytti innan við eitt prósent kjósenda atkvæðisréttar síns. Leikar fóru þannig að Rajapakse hlaut 50,29 prósent atkvæða og 48,38 prósent kjósenda merktu við Ranil Wickremeshinghe, oddvita stjórnarandstöðunnar, en stuðningsmenn hafa farið fram á að kjörfundur verði endurtekinn norðvestanlands. Ellefu aðrir frambjóðendur deildu afgangnum með sér. Rajapakse kvaðst í viðtölum við blaðamenn ánægður með sigurinn og hét því að friðarviðræður við Tamíla yrðu forgangsverkefni sitt. Hann útilokaði þó að þeir fengju að stofna sjálfstætt ríki. Tígrarnir hafa undanfarna áratugi barist fyrir réttindum Tamíla, sem eru hindúar, í landi þar sem Sinhalar, sem aðhyllast búddisma, fara með völd. Borgarastyrjöld geisaði lengi vel en vopnahlé komst svo á árið 2002. Talið er að 65.000 manns hafi látist í átökunum.
Erlent Mest lesið Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Erlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Innlent Heitt í hamsi vegna Grænlands Innlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Innlent Fleiri fréttir Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Sjá meira