Níu létust í Danmörku og Svíþjóð 9. janúar 2005 00:01 MYND/AP
Að minnsta kosti 9 manns fórust í óveðri sem gekk yfir Danmörku og hluta Svíþjóðar í gær. Rafmagn fór af tæplega fimm hundruð þúsund heimilum í löndunum tveimur. Danskir fjölmiðlar segja rafmagn hafa farið af 60 þúsund heimilum og sænskir tala um 410 þúsund heimili. Í Danmörku fórust tveir ökumenn þegar tré féllu á bíla þeirra og aðrir tveir þegar þak af húsi fauk á þá þar sem þeir voru á gangi. Að minnsta kosti þrír hinna látnu bjuggu á Fjóni. Svipaða sögu er að segja frá Svíþjóð, en hið sænska Dagbladet segir að minnsta kosti fimm hafa látist og suma vegna trjáa sem féllu á bíla þeirra. Í báðum löndum er unnið að því að koma rafmagni á aftur og reiknað er með að það takist í dag. En það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála næstu daga, sérstaklega hvað varðar rafmagn og hitaleysi í híbýlum fólks því stjórnvöld voru gagnrýnd mikið eftir svokallaðan fellibyl aldarinnar, sem gekk yfir Danmörku, Svíþjóð og norðurhluta Þýskalands í desember 1999. Þá létust 18 manns í löndunum þremur og gríðarlegt eignartjón varð og langan tíma tók að koma öllu í samt lag. Eftir þann harmleik sögðu opinberir aðilar og fyrirtæki að þau hefðu lært sína lexíu. Fellibylur er skilgreindur 33 metrar á sekúndu en í Damörku í gær fóru mestu vindhviðurnar í 49 metra. Skemmdirnar eru gríðarlegar og birtar hafa verið myndir í sjónvarpi af ónýtum bílum undir trjám og 3 metra háu vatnsborði á götum bæja á Vestur-Jótlandi, sem fer minnkandi með deginum. Allt er borið saman við óveðrið 1999 og sem dæmi segir öryggisfyrirtækið Falck að útköllin nú verði nálægt 10.000 en þau voru 17.000 árið 1999. Samgöngur eru að komast í lag eftir lætin í gær en brúnum yfir Stóra- og Litlabelti ásamt Eyrarsundsbrúnni milli Danmerkur og Svíþjóðar var lokað. Þá er búið að opna aftur flugvellina í Kaupmannahöfn og Malmö.
Erlent Fréttir Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Fleiri fréttir Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sjá meira