Stjórnmál hamla hjálparstarfi 8. janúar 2005 00:01
Stjórnmál hamla björgunaraðgerðum víða á hamfarasvæðunum í Suðaustur-Asíu. Heimsóknir tignarmanna dreifa athyglinni og hjálpargögn eru notuð sem vopn í innanríkisátökum. Lík finnast enn í Indónesíu þar sem skemmdirnar eru gríðarlegar og hundrað og fimm þúsund manns eru sagðir hafa látist. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja örlög tugþúsunda á huldu og að fjöldi þeirra sem farist geti margfaldast eftir því sem fleiri finnast og ef ekki tekst að koma hjálpargögnum til allra um helgina. Í sumum byggðum er óttast að níutíu prósent íbúanna hafi farist. Í dag stóð til að koma neyðarhjálpargögnum til síðustu fórnarlamba flóðbylgjunnar á Srí Lanka. Talsmenn Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar segja engar vísbendingar um farsóttirnar sem óttast var að brytust út. Uppbyggingarstarf er hafið sums staðar á eynni en óljóst er hvort hjálpargögn komist með eðlilegum hætti til svæða tamílskra uppreisnarmanna sem saka stjórnvöld um að nota neyðarhjálp í átökunum sem staðið hafa árum saman. Stjórnvöld neita þessu en vildu ekki heimila Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að kynna sér ástandið á þeim svæðum sjálfur. James Wolfensohn, yfirmaður Alþjóðabankans, var á ferð með Annan og svaraði spurningum um eðli hjálparstarfs og fjárframlaga og áhrif spillingar. Hann sagði að reynsla bankans á heimsvísu væri sú að ef hjálpin væri á vegum heimamanna væru meiri líkur á að starfið færi heiðarlega fram, að því gefnu að það væri gegnsætt því heimamenn vissu hverjir þrjótarnir væru. Frammi fyrir erfiðleikum sem þessum væri mjög mikilvægt að fela yfirvöldum á staðnum að leita lausna. Ekki væri hægt að miðstýra slíku. Wolfensohn sagði ennfremur að það væri hluti af lækningarferlinu að heimamenn tækju þátt í að skipuleggja framtíðina. Það væri mikilvægur þáttur en flókinn í ljósi sögu Srí Lanka og fyrri átaka. Nú væri gullið tækifæri til að nýta augnablikið. Fleira hamlar hjálparstarfinu en innanríkisátök. Á eyjunum Andaman og Níkóbar kvörtuðu hjálparstarfsmenn í dag undan heimsókn Indlandsforseta en þeir segja skipulagningu heimsóknarinnar hafa dreift athygli stjórnenda starfsins og þeir ekki getað einbeitt sér að aðalatriðunum, að hjálpa fólki.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira