Heilsu milljarða jarðarbúa ógnað 12. desember 2005 02:00 Vannæring. Framtíðin er dökk að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Ný skýrsla sýnir að mannkynið hugsar of lítið um náttúruna og það mun koma niður á heilbrigði næstu kynslóða.
Mikill ágangur á viðkvæm vistkerfi heimsins mun hafa alvarlegar afleiðingar á tilveru og heilsufar milljarða íbúa jarðar í framtíðinni. Er það niðurstaða nýrrar skýrslu sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO hefur sent frá sér. Um 1.300 vísindamenn komu að gerð hennar. Í skýrslunni er varað við þeirri þróun sem verið hefur í heiminum undanfarin ár þar sem æ fleiri vistkerfi víðs vegar í heiminum hafa látið á sjá og alls óvíst er hvort þau beri þess nokkurn tíma bætur. Svæði sem talin eru í sérstakri hættu eru stór landsvæði í Afríku, Suður-Ameríku og Asíu. Þrennt er þegar farið að hafa áhrif á líf milljarða manna á þessum slóðum. Rányrkja á hafi og landi hefur á síðustu árum dregið úr möguleikum 800 milljóna manna á að afla sér matar til viðbótar við þann milljarð fólks sem þegar þjáist daglega af daglegum matarskorti. Vatnsmengun er víða algengt vandamál og benda tölur stofnunarinnar til að rúmar þrjár milljónir manna látist ár hvert vegna mengaðs drykkjarvatns. Það eru um sex prósent allra dauðsfalla í heiminum á ári hverju. Telja skýrsluhöfundar að stór hluti þess ávinnings sem mannkynið hefur af heilbrigðum vistkerfum, hreint vatn, hreint loft og milt veðurfar, sé nú notaður með óskynsamlegum hætti. Áhrifin séu þegar komin í ljós og þau muni versna til muna á næstu fimmtíu árum verði ekkert aðhafst. Skýrslan þykir sýna brýna nauðsyn til að vernda vistkerfi heimsins sem aldrei fyrr. Breytingar á þeim hafa í för með sér breytingar á heilsu og lífi milljóna, nú og í framtíðinni.
Erlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira