Tugir særðust í sprengingu í olíubirgðastöð við London 12. desember 2005 03:30
43 manneskjur slösuðust, þar af tvær alvarlega, eftir að gífurlegar sprengingar urðu í einni af stærstu olíubirgðastöð Bretlands í London snemma í gærmorgun. Birgðastöðin nefnist Buncefield og er staðsett rétt fyrir utan bæinn Hemel Hempstead norður af London. Svo virðist sem slys hafi valdið sprengingunum en ekki hryðjuverk eins og einhverjir héldu í fyrstu. Lögreglan í Bretlandi bjóst við því að sprengingar á svæðinu myndu halda áfram í langan tíma í gær, en 16 milljónir lítra af olíu voru geymdir þar. Rúður í nágrenninu brotnuðu og hús voru umkringd miklum reykjarmekki. Náði reykjarstrókurinn við birgðastöðina allt að 3000 metra upp í loftið. "Þetta er mjög stór geymsla og hún á eftir að brenna í töluverðan tíma," sagði Frank Whiteley, yfirmaður hjá lögreglunni í Hertfordskíri í gær. "En þetta er allt undir fullri stjórn." Ekkert benti til þess að hryðjuverkamenn hefðu valdið sprengingunum þrátt fyrir að al-Kaída samtökin hafi lengi hótað því að eyðileggja eldsneytisbirgðir vestrænna ríkja. @Mynd -FoMed 6,5p CP:Reykjarstrókur Mikill reykjarstrókur myndaðist þegar olían brann í Buncefield-birgðastöðinni norður af London í gær. 43 manneskjur slösuðust í sprengingunum sem urðu snemma í gærmorgun.Mynd/AP Bretar hafa verið mjög á varðbergi gagnvart hryðjuverkamönnum síðan sprengingar urðu í lestarkerfi landsins í júlí af völdum sjálfsmorðsárása. Þá fórust 56, þar á meðal fjórir sjálfsmorðsárásarmenn. "Allt bendir til þess að þetta hafi verið slys," sagði Whiteley. "Samt sem áður verðum við að halda öllum möguleikum opnum þar til við vitum fyrir víst hvað gerðist." Mannskæðasta olíuslys Bretlands til þessa varð 6. júlí 1988 þegar 167 verkamenn fórust í miklum eldsvoða á olíuborpallinum Piper Alpha undan ströndum Skotlands. Árið 1994 kviknaði í olíugeymslustöð í Milford Haven í Wales. 26 verkamenn slösuðust og milljarðatjón varð. Olíufyrirtækin Texaco og Gulf voru í framhaldinu sektuð fyrir að brjóta heilbrigðis- og öryggisreglur. Buncefield er fimmta stærsta olíubirgðastöð Bretlands en þær eru um fimmtíu talsins. Sér hún um 5% af allri olíunotkun Breta.
Erlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira