Ríkisstjórnin áttaði sig ekki á alvörunni 3. desember 2005 06:00 Göran Persson. Sofandaháttur sænskra stjórnvalda eftir flóðbylgjuna í Indlandshafi í fyrra er harðlega gagnrýndur þessa dagana. Krafist er afsagnar þriggja ráðherra, þar á meðal forsætisráðherrans Göran Persson.
Skorað er á Göran Persson forsætisráðherra, Lailu Freivalds utanríkisráðherra, Ylvu Johansson öldrunarráðherra auk fimm háttsettra embættismanna í utanríkisráðuneytinu að segja af sér þegar í stað fyrir stórfelld afglöp í starfi en viðbrögð þeirra við flóðbylgjunni í Indlandshafi um síðustu jól þóttu svifasein og ófullnægjandi. Yfir 500 Svíar fórust í hamförunum. Háværar gagnrýnisraddir fóru af stað eftir að eftir að kynntar voru harðorðar niðurstöður skýrslu um viðbrögð sænska stjórnkerfisins við hamförunum. Ráðherrar og embættismenn voru í jólafríi eins og stór hluti heimsbyggðarinnar þegar flóðið átt sér stað. Þeir fylgdust lítið með fréttum, gerðu sér enga grein fyrir alvarleika málsins og aðhöfðust lítið sem ekkert fyrr en mörgum dögum eftir harmleikinn í stað þess að mæta strax til vinnu og skipuleggja viðbrögð og hjálparstarf. Fjölmargir sænskir fjölmiðlar birtu leiðara um málið í gær og þar kom fram gríðarleg reiði vegna lélegrar framgöngu stjórnvalda. Gagnrýnin er talin ein sú allra harkalegasta sem heyrst hefur, nánast ruddaleg, og að ráðamönnum svíði verulega undan henni. Forsætisráðherrann hefur beðist afsökunar en hann hyggst ekki segja af sér og ætlar heldur ekki að krefjast afsagnar annarra. "Ef einhver ætti að taka pokann sinn þá er það ég," sagði hann við Aftonbladet. Þrír embættismenn hafa verið fluttir í önnur og, að því er talið er, betri störf. Vantraustsyfirlýsing er í undirbúningi og verður borin fram ef enginn segir af sér eða verður rekinn. Ferns konar gagnrýni kemur fram í skýrslunni: Í sænska stjórnarráðið vantaði sérstaka deild sem sæi um viðbrögð við slíkum náttúruhamförum, vöktun utanríkisráðuneytisins á ferðum Svía erlendis var í lamasessi, heilsugæslan var ekki viðbúin því að sinna verkefnum erlendis og ræðisskrifstofur höfðu ekki tök á að takast á við svona hamfarir. Ekki brugðust þó allir í sænska stjórnkerfinu. Í skýrslunni er þremur embættismönnum hrósað sérstaklega fyrir að átta sig strax á alvöru málsins. Þeir mættu þegar í stað til vinnu á jólunum um leið og þeir höfðu heyrt fréttirnar og kölluðu svo aðra starfsmenn til vinnu til að koma hjálparstarfinu í gang.
Erlent Mest lesið Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Erlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Fleiri fréttir Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Sjá meira