Yrði skærari en Pólstjarnan 11. desember 2005 04:30 þorsteinn sæmundsson telur mestar líkur á að Apophis muni fara fram hjá jörðu í öruggri fjarlægð.
Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur sem fylgist manna best með því sem gerist í heimi geimrannsókna segir ekki ástæðu til að hlaupa upp til handa og fóta vegna Apophis og hugsanlegrar hættu á að hann rekist á jörðina. "Ég held að það séu mestar líkur á því að nánari mælingar á braut smástirnisins sýni að það fer fram hjá án þess að okkur stafi hætta af," segir hann. Næsta tækifæri til að mæla braut steinsins af meiri nákvæmni að sögn Þorsteins gefst árið 2013 og svo enn aftur árið 2021. "Ef þær mælingar sýna sömu niðurstöðu þá yrði að reyna að grípa til aðgerða," segir hann. Þorsteinn telur raunhæft að hægt verði að senda geimfar til móts við steininn til að breyta braut hans. "Tæknin er að komast á það stig að við eigum að geta breytt braut smástirnis eins og þessa," segir Þorsteinn. Hins vegar segir hann að það sé óumflýjanlegt að smástirni rekist á jörðina fyrr eða síðar. Það hafi gerst og eigi eftir að gerast aftur. "Líkurnar á því að þetta gerist á einni mannsævi eru einn á móti tíu þúsund, sem eru bara þó nokkuð miklar líkur." Þorsteinn dregur ekkert úr því að slíkur árekstur myndi valda gríðarlegu tjóni. "Ef stór loftsteinn færi í hafið, sem mestar líkur eru á, þá myndi það framkalla flóðbylgjur sem gætu verið nokkur hundruð metrar á hæð." Samkvæmt núverandi útreikningum á braut Apophis fer hann fram hjá jörðinni í um þrjátíu þúsund kílómetra fjarlægð þann 13. apríl 2029. Það er mjög nálægt að sögn Þorsteins og nefnir til dæmis að gangi það eftir myndi steinninn geta sópað burt nokkrum fjarskiptatunglum ef illa tekst til. "Hann mun að minnsta kosti sjást greinilega á himni og að öllum líkindum verða skærari en Pólstjarnan," segir Þorsteinn Sæmundsson.
Erlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira