Ferðaðist víða á fölsuðu vegabréfi 12. desember 2005 04:00 Ströng gæsla. Vopnuð lögreglukona stendur vörð við dómhús í Madríd þangað sem farið var með Gotovina í gær.
Króatíski hershöfðinginn fyrrverandi, Ante Gotovina, sem nú bíður þess að vera framseldur frá Spáni til stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Haag, hafði ferðast víða um heiminn á fölsuðu vegabréfi er hann náðist á hóteli á Kanaríeyjum á miðvikudagskvöld. Frá þessu greindu fulltrúar spænskra yfirvalda fyrir helgi. Spænska lögreglan handtók Gotovina eftir að alþjóðalögreglunni Interpol hafði borist ábending um að hann dveldi á hóteli á Tenerife. Jose Antonio Alonso, innanríkisráðherra Spánar, sagði í gær að Gotovina yrði framseldur til Haag eins fljótt og auðið yrði. Spænska lögreglan hafði fengið ábendingu um að til Gotovina hefði sést á Kanaríeyjum í október síðastliðnum. Eftir það var lögreglan þar á verði. Spænska fréttasjónvarpsstöðin CNN+ sýndi brot úr lögreglumyndbandi þar sem sást hvar lögreglumenn gengu að Gotovina á veitingastað hótelsins. Hann virtist ekki sýna neina mótspyrnu við handtökuna. Alonso sagði að í fórum hans hefðu fundist 12.000 evrur í reiðufé, fartölva og tvö fölsuð vegabréf. Í vegabréfinu sem hann notaði við komuna til Kanaríeyja var að finna nýlega stimpla frá Tahítí, Argentínu, Kína, Chile, Rússlandi og Tékklandi, svo og eynni Máritíus á Indlandshafi. Gotovina stýrði landher Króatíu í Júgóslavíustríðinu 1991-1995. Hann er sakaður um að hafa borið ábyrgð á fjöldamorði á Króatíu-Serbum og brottrekstri um 150 þúsund þeirra frá Króatíu. Hann er þjóðhetja í augum margra Króata. Króatískir þjóðernissinnar efndu í gær til mótmæla í Króatíu vegna handtöku hans. Ásakanir um að króatísk stjórnvöld héldu yfir honum hlífiskildi töfðu upphaf aðildarviðræðna Króata við Evrópusambandið.
Erlent Mest lesið 70 milljóna króna halli vegna uppsagnar samningsins Innlent Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Erlent Sækja WorldPride í skugga bakslags í réttindum hinsegin fólks Innlent Jöklar hér á landi minnkað um eina Lúxemborg Innlent Vísbendingar um að síðasta vígið sé fallið Innlent Beðasléttur í borginni: Óttast óafturkræfan skaða á Laugarnesi Innlent Ummæli Kolbrúnar blaut tuska í andlit ungmenna Innlent Kýldi konu eftir kynmök: „Hvað, getur þú ekki meira?“ Innlent Grófu látin og særð börn upp úr rústum Erlent Klara Baldursdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Tók 12 ár að breyta reglum um bætur vegna seinkun flugferða Grófu látin og særð börn upp úr rústum Wagner yfirgefur Malí í skugga mikilla árása Mótmæli og átök eftir áhlaup ICE í Los Angeles Aftur logar eldur í Læradal Deilurnar halda áfram og Musk boðar „Ameríkuflokkinn“ Stærsta árásin á Kharkív hingað til Var fluttur óvart úr landi en er snúinn aftur Engin sátt í sjónmáli: Trump vill selja Tesluna Klóra sér í kollinum yfir stórri reikistjörnu á braut um litla stjörnu Reyna að stilla til friðar með símtali Dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir að nauðga tugum skjólstæðinga Bras á breska Umbótaflokknum þrátt fyrir velgengnina Brotlentu öðru einkafari á tunglinu Fyrirsjáanlegar deilur: Valdamesti maður heims og sá ríkasti hnakkrífast Eldar loguðu í Kænugarði eftir umfangsmiklar árásir Rússa Segir nafn Trumps vera í Epstein-skjölunum Trump segist „mjög vonsvikinn“ út í Elon og ekki viss um að þeir geti átt gott samband Ákærð fyrir að myrða táning en líkið enn ófundið Sagður verulega ósáttur við gagnrýni Musks Fíll ruddist inn í matvöruverslun Bannar nú erlenda nemendur í Harvard á grunni þjóðaröryggis Felldu tillögu um að olíusjóðurinn sniðgengi fyrirtæki á hernumdu svæðunum Krefst fimm prósenta til varnarmála: „Allir þurfa að leggja hönd á plóg“ Endurvekur ferðabannið Telja rúmensk glæpagengi smygla matarsendlum inn í Ósló Birtir þrisvar sinnum fleiri færslur en áður Svíar leigja fangelsispláss í Eistlandi Reyndi að bragðbæta baneitruðu máltíðina Musk hraunar yfir „stórt og fallegt“ frumvarp Trumps Sjá meira