Frá smástirni til loftsteins 11. desember 2005 02:00
Loftsteinn verður ekki loftsteinn fyrr en hann skellur á jörðina. Fram að því heitir hann smástirni. Þetta geimgrýti getur verið afar mismunandi að stærð, allt frá risastórum flykkjum á borð við Apophis, niður í agnarlítil sandkorn. Þetta eru smæstu agnir geimsins sem eru á braut um sólu. Steinarnir eru yfirleitt úr bergi, bergi og járni eða járni. Flestir þeirra eru frá því sólkerfið myndaðist fyrir um 4600 milljónum ára. Vegna smæðar sinnar verða loftsteinar fyrst sýnilegir þegar þeir komast í snertingu við lofthjúp jarðar. Þá sést það sem við köllum yfirleitt stjörnuhrap. Steinarnir glóa vegna núnings við sameindir lofthjúpsins sem skella á þeim á miklum hraða. Flestir loftsteinar brenna algjörlega upp í lofthjúpnum í um 100 km hæð. Þeir sjást sjaldan í meira en fáeinar sekúndur og ferðast á hraðanum 5-30 kílómetrar á sekúndu. Stundum eru steinarnir þó það stórir að þeir ná ekki að brenna upp til agna í lofthjúpnum og falla til jarðar. Til eru mörg dæmi um að loftsteinar hafi skollið til jarðar. Í október 1992 sást eldhnöttur á himni yfir Peekskill í New York sem splundraðist í nokkra hluta og féll til jarðar. Eitt brotið lenti á bifreið konu nokkurrar. Hún slapp ómeidd en varð afar undrandi þegar hún fór út úr bílnum og sá hvar stór steinn lá við hliðina á honum. Steinninn reyndist vera loftsteinn og var tólf kíló á þyngd. Verra var fyrir konuna að tryggingar bæta ekki tjón af völdum loftsteina svo hún sat uppi með kostnaðinn af skemmdunum á bílnum. Hún sló hins vegar eign sinni á steininn og svo hljóp heldur betur á snærið hjá henni því henni voru boðnir nokkur þúsund dollarar fyrir loftsteininn og bílinn sem nú er sýningargripur. Heimild: Stjörnufræðivefurinn.
Erlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Sjá meira