Sirleaf kjörin forseti Líberíu 12. nóvember 2005 02:00 Kjarnakona. "Konur eru reiðubúnar að skrifa söguna," sagði Ellen Johnson-Sirleaf við stuðningsmenn sína í gær. "Og karlarnir eru tilbúnir að vinna með okkur."
Ellen Johnson-Sirleaf er fyrsta konan sem nær kjöri sem forseti Afríkuríkis en þegar þorri atkvæðanna í líberísku þingkosningunum hefur verið talinn hefur hún öruggt forskot á George Weah, keppinaut sinn. Hann segir brögð hafa verið í tafli. Þegar 91 prósent atkvæðanna úr síðari umferð líberísku forsetakosninganna, sem fram fór fyrr í vikunni, hafði verið talið í gær höfðu 59 prósent kjósenda greitt Johnson-Sirleaf atkvæði sitt en 41 prósent Weah. "Ég held að úrslitin séu mjög skýr, ég er afar auðmjúk yfir að líberíska þjóðin skyldi hafa valið mig til að leiða landsmenn á braut sátta og uppbyggingar," sagði hún í útvarpsviðtali við BBC. Hún kvaðst vonast til að sigur sinn hvetti kynsystur sínar í Afríku til frekari dáða. Enn á eftir að telja atkvæði úr afskekktari sveitahéruðum landsins og því gæti dregist um tvær vikur að tilkynna endanleg úrslit. Bráðabirgðaniðurstöður kosningaeftirlitsmanna á vegum Efnahagsbandalags Vestur-Afríkuríkja benda til að kosningarnar hafi farið heiðarlega fram og litlir hnökrar verið á framkvæmd þeirra. George Weah og stuðningsmenn hans vísa þeim dómi hins vegar algerlega á bug og segja að brögð hafi verið í tafli. Weah sýndi blaðamönnum kjörseðla sem hann sagði formerkta Johnson-Sirleaf. Þessum seðlum hafi starfsmenn kjörstjórna stungið í kjörkassana. Johnson-Sirleaf fæddist árið 1938 en á sínum yngri árum naut hún þeirra forréttinda að hljóta menntun í bestu háskólum Bandaríkjanna. Á áttunda áratugnum gegndi hún embætti fjármálaráðherra Líberíu en í kjölfar herforingjabyltingar árið 1980 missti hún embætti sitt og sat um tíma í fangelsi. Þegar Charles Taylor tók að þjarma að herforingjunum upp úr 1990 gerði Johnson-Sirleaf þau mistök að styðja hann tímabundið en það kom á daginn að hann var engu skárri en þeir sem höfðu haldið um valdataumana í landinu. Erfitt verk bíður nýja forsetans því efnahagur landsins er í rúst og tortryggni er enn ríkjandi eftir margra ára borgarastyrjöld. Johnson-Sirleaf virðist hins vegar horfa björtum augum til framtíðar. "Konur eru reiðubúnar að skrifa söguna," sagði hún við stuðningsmenn sína í gær. "Og karlarnir eru tilbúnir að vinna með okkur."
Erlent Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Sjá meira