Erlent

Létust með voveiflegum hætti

Bandarísk mannréttindasamtök halda því fram að tveir fangar hafi látist með voveiflegum hætti í herfangabúðunum í Guantanamo-herstöðinni. Human Rights Watch greindi frá því í gær að fulltrúar samtakanna hefðu undir höndum sönnunargögn sem sýndu að fjórir bandarískir hermenn hafi myrt fanga í herstöðinni árið 2002 og að maður, sem handtekinn var í lok september á þessu ári, hefði fundist látinn næsta dag án þess að skýring fyndist. Talsmenn samtakanna saka Bandaríkjastjórn um að taka ekki á málinu og rannsaka það. Talsmenn stjórnvalda neita þessu og segja öll mál rannsökuð ofan í kjölinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×