Upp­gjör: Stjarnan-Þór/KA 3-2: Stjörnukonur  aftur á sigurbraut

Theodóra Guðný Vilhjálmsdóttir skrifar
Stjörnukonur fagna einu af þremur mörkum sínum í sigrinum í kvöld.
Stjörnukonur fagna einu af þremur mörkum sínum í sigrinum í kvöld. Vísir/Pawel

Stjarnan lagði Þór/KA, 3-2, þegar liðin mættust á Samsungvellinum í Bestu deild kvenna í kvöld. 

Heimakonur voru sterkari aðilinn framan af, komust snemma yfir og eftir að Þór/KA hafði jafnað fyrir leikhlé svöruðu Garðbæingar með tveimur mörkum í síðari hálfleik. Gestirnir minnkuðu muninn úr vítaspyrnu undir lok leiks og hleyptu spennu í lokamínúturnar en nær komust þær ekki. 

Með sigrinum er Stjarnan áfram í þriðja sæti deildarinnar með 21 stig, jafnmörg og Breiðablik sem á þó leik til góða. Þór/KA situr áfram í níunda sæti með níu stig.

Vísir/Pawel

Stjarnan byrjaði leikinn af miklum krafti og setti gestina undir gríðarlega pressu frá fyrstu mínútu. Pressan skilaði árangri strax á sjöttu mínútu þegar heimakonur komust yfir.

Alessandra Dorothy Augur átti þá misheppnaða sendingu út frá marki og Stjarnan vann boltann á hættulegum stað. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir reyndi sendingu inn á teiginn sem fór af varnarmanni Þórs/KA og beint fyrir fætur Fanneyjar Lísu Jóhannesdóttur sem kláraði færið af öryggi.

Eftir markið róaðist leikurinn nokkuð. Þór/KA vann sig smám saman inn í leikinn og fór að skapa sér fleiri færi. Jöfnunarmarkið kom á 36. mínútu. Löng sending úr vörn Þórs/KA rataði inn fyrir varnarlínu Stjörnunnar þar sem Bríet Jóhannsdóttir slapp í gegn. Þóra María Hjaltadóttir náði að elta hana uppi og reyndi að hreinsa boltann frá, en hann fór af Þóru Maríu, aftur í Bríeti og þaðan í netið. Þetta var nokkuð óheppilegt mark fyrir heimakonur en staðan var jöfn, 1-1, í hálfleik.

Vísir/Pawel

Stjarnan mætti af miklum krafti til síðari hálfleiks og tók fljótlega aftur forystuna. Á 57. mínútu átti varamaðurinn Hulda Hrund Arnarsdóttir glæsilega fyrirgjöf inn á teig þar sem Snædís María Jörundsdóttir reis hæst og skallaði boltann af miklu öryggi í netið.

Aðeins átta mínútum síðar tvöfaldaði Stjarnan forskot sitt. Telma Steindórsdóttir átti frábæra langa sendingu úr vörninni sem fann Huldu Hrund Arnarsdóttur. Hulda Hrund slapp ein í gegn og afgreiddi boltann af miklu öryggi í vinstra hornið og kom heimakonum í 3-1.

Þór/KA reyndi að svara og sótti meira eftir því sem leið á leikinn. Á 88. mínútu var vítaspyrna dæmd eftir að Jakobína Hjörvarsdóttir braut á Erin Flurey innan vítateigs. Erin tók vítaspyrnuna sjálf og skoraði af öryggi með föstu skoti í vinstra hornið.

Gestirnir reyndu að nýta sér meðbyrinn á lokamínútunum og sækja jöfnunarmarkið, en Stjarnan stóð pressuna af sér og lokatölur 3-2 fyrir Stjörnunni.

Garðbæingar halda þar með áfram að setja pressu á toppliðin og eru nú jafnir Breiðabliki að stigum, þótt Breiðablik eigi leik til góða. Fyrir Þór/KA var tapið vonbrigði eftir tvö góð úrslit í röð, en liðið situr áfram í níunda sæti deildarinnar.

Snædís María Jörundsdóttir skoraði með glæsilegum skalla.Vísir/Pawel

Atvik leiksins

Atvik leiksins var annað mark Stjörnunnar sem Snædís María Jörundsdóttir skoraði með glæsilegu skallamarki. Þór/KA hafði náð að koma sér aftur inn í leikinn með jöfnunarmarki undir lok fyrri hálfleiks, en mark Snædísar kom Stjörnunni aftur yfir og sneri leiknum á ný heimakonum í vil.

Stjörnur og skúrkar

Í liði Stjörnunnar stóð varamaðurinn Hulda Hrund Arnarsdóttir upp úr. Hún breytti leiknum eftir að hún kom inn á í hálfleik, lagði upp annað mark Stjörnunnar með frábærri fyrirgjöf á Snædísi Maríu Jörundsdóttur og skoraði síðan sjálf þriðja mark heimakvenna. Í liði Þórs/KA var Erin Flurey atkvæðamest. Hún vann vítaspyrnu undir lok leiks og skoraði sjálf úr henni.

Dómarinn

Atli Björn E. Levy og hans teymi áttu góðan leik. Þeir héldu góðri stjórn á leiknum, leyfðu honum að flæða vel og engin stór vafaatriði komu upp.

Stemning og umgjörð

Það var skýjað í Garðabænum og ekki mikill hiti en það var ágæt mæting á Samsungvöllinn og áhorfendur létu vel í sér heyra allan leikinn.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira