Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Hjörvar Ólafsson skrifar 14. júlí 2026 19:01 Óskar Borgþórsson átti góðan leik á vinstri vængnum. Vísir/Diego Víkingur og Györ ETO skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í seinni leik sínum í fyrstu umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta karla yfra í kvöld. Víkingur hafði betur í fyrri leik liðanna í Fossvoginum og er þar af leiðandi kominn áfram í næstu umferð forkeppninnar. Daníel Hafsteinsson kom Víkingi yfir eftir rúmlega hálftíma leik. Gylfi Þór Sigurðsson sendi þá góða sendingu fyrir úr hornspyrnu og Daníel kom sér í gott færi af harðfylgi og setti boltann í netmöskvana á marki Györi ETO. Adam var hins vegar ekki lengi í paradís hjá Víkingi þar sem Milán Vitális jafnaði metin skömmu síðar úr vítaspyrnu sem dæmd var réttilega á Óskar Borgþórsson. Milán Vitális kom svo Györi ETO yfir í leiknum með skallamarki sínu í uppbótartíma fyrri hálfleiks og staðan í einvígi liðanna þar af leiðandi 2-2 þegar liðin röltu til búningsklefa í hálfleik. Daníel Hafsteinsson reyndist gulls ígildi í þessum leik en hann skoraði bæði mörk Víkings. Vísir/Diego Víkingur náði aftur á móti að gera vel í að endurstilla hugann og leikskipulag sitt í hálfleik og mætti afar sterkt til leiks inn í seinni hálfleikinn. Góður kafli Víkings í upphafi seinni hálfleiks skilaði marki eftir tíu mínútna leik í seinni háflelik. Óskar Borgþórsson átti þá góðan sprett upp vinstri vænginn, setti boltann á Helga Guðjónsson sem renndi boltanum á Daníel sem skoraði með föstu og hnitmiðuðu skoti. Annað mark Daníels og staðan jöfn, 2-2, í leiknum og 3-2 í viðureign liðanna. Valdimar Þór Ingimundarson setti svo boltann í netið þegar um það bil stundarfjórðungur var eftir af leiknum en markið stóð ekki þar sem Aron Elís, sem kom sterkur inn af varamannabekknum, var réttilega flaggaður rangstæður í aðdraganda þess að boltinn barst til Valdimars Þórs. Leikmenn Víkings þurftu að söffera aðeins síðasta korterið en Viktor Örlygur Andrason hefði getað róað taugar Víkinga þegar Erlingur Agnarsson setti hann í gott færi í uppbótartíma leiksins. Viktori Örlygi brást bogalistin í skoti sínu og taugatrekkjandi mínútur fram undan hjá gestunum. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og jafntefli staðreynd sem fleytir Víkingi áfram í næstu umferð forkeppninnar þar sem ísraelska liðið Hapoel Be'er Sheva verður andstæðingurinn. Leikir liðanna í annarri umferð forkeppninnar fara fram 21. eða 22. júlí og svo 28. eða 29. júlí næstkomandi. Aron Elís Þrándarson kom með mikinn kraft inn í framlínu Víkings í seinni hálfleik. Vísir/Diego Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Víkingur Reykjavík