Lengsti klukkutími ævinnar Kvikmyndin Dimmalimm fjallar um konu sem lokar sig inni í íbúð sinni í Vínarborg og tekst á við eigin geðveiki. Myndin er rétt rúmur klukkutími en líður ofurhægt vegna klisjukennds handrits, skorts á framvindu og langdreginna teygðra sena. Gagnrýni 4.3.2026 07:02
Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Að minnsta kosti fimm létu lífið í snjóflóðum sem féllu víða um austurríska sambandslandið Tíról í dag og í gær. Þung snjókoma og sterkir vindar hafa riðið yfir landshlutann undanfarna daga. Erlent 21.2.2026 22:26
Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Réttarhöld hefjast á morgun yfir kærasta Kerstin G, sem lést af völdum ofkælingar á fjallinu Grossglockner í Austurríki fyrir um mánuði síðan. Ákæruvaldið segir að þar sem kærastinn hafi verið mun reynslumeiri en konan, hafi hann gerst sekur um alvarlega vanrækslu þegar hann yfirgaf hana á fjallinu og snéri ekki aftur eða leitaði aðstoðar í tíma. Erlent 18.2.2026 09:06
„Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Stjórn Ríkisútvarpsins tekur ákvörðun á stjórnarfundi á fundi sínum sem hefst klukkan 15 hvort Ísland muni draga sig úr keppni í ár. Boðað hefur verið til samstöðufundar við RÚV klukkan hálf þrjú þar sem stjórn stofnunarinnar er hvött til að sniðganga Eurovision. Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, hvetur stjórnina til að taka ekki þátt. Lífið 10. desember 2025 09:36
Breyta reglum um atkvæðagreiðslu og kynningu laga í Eurovision Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, hefur kynnt ýmsar nýjar reglur um atkvæðagreiðslu og kynningu laga sem taka þátt í Eurovision sem eiga að tryggja hlutleysi. Reglurnar verða ræddar á fundi þátttökuþjóða í desember og eru viðbragð við áhyggjum margra þjóða af afskiptum Ísraela af atkvæðagreiðslu í fyrra. Lífið 21. nóvember 2025 09:29
Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Austurríska leyniþjónustan segist hafa lagt hald á vopnabirgðir Hamas-samtakanna palestínsku í Vín. Mögulega hafi staðið til að nota þau til þess að fremja hryðjuverk í Evrópu. Erlent 6. nóvember 2025 14:19
Reynir að endurheimta markametið með því að finna gömul óskráð mörk Marko Arnautovic varð á föstudagskvöldið markahæsti leikmaður austurríska fótboltalandsliðsins frá upphafi en sá sem átti markametið áður var ekki alltof hrifinn og ætlar að leita réttar síns fyrir dómstólum. Fótbolti 12. október 2025 11:00
Sagðir skoða að færa Eurovision verði Ísraelum meinuð þátttaka Austurríkiskanslari og flokksbræður hans eru sagðir beita sér fyrir því að Eurovision fari ekki fram í landinu á næsta ári ef Ísrael verður meinuð þátttaka í keppninni. Talsmaður flokksins segir ótækt að banna listamanni af gyðingaættum að taka þátt í keppninni. Erlent 9. október 2025 17:39
Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Beate Meinl-Reisinger, utanríkisráðherra Austurríkis, hefur hvatt Evrópuríki til að draga sig ekki úr Eurovision vegna þátttöku Ísraela. Hollendingar, Spánverjar, Írar og Slóvenar hafa gefið það út að þau muni ekki taka þátt verði Ísraelar með. RÚV hefur einnig sett fyrirvara á þátttöku Íslands, og sagt hana ólíklega ef Ísrael verður með. Erlent 20. september 2025 22:00
Afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael með Verkefnastjóri hjá RÚV telur afar ólíklegt að Ísland taki þátt í Eurovision á næsta ári verði Ísrael með. Ótti hafi gripið um sig á keppninni í ár þegar það leit út fyrir að Ísrael gæti unnið keppnina. Lífið 9. september 2025 20:02
Vín mun hýsa Eurovision á næsta ári Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, mun fara fram í austurrísku höfuðborginni Vín í maí á næsta ári. Lífið 20. ágúst 2025 07:17
Breyta merki Eurovision Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hafa ráðist í talsverðar breytingar á merki og ásýnd Eurovision í tengslum við sjötíu ára afmæli söngvakeppninnar á næsta ári. Á miðvikudag verður tilkynnt í hvaða austurrísku borg næsta keppni fer fram. Tíska og hönnun 18. ágúst 2025 11:28
Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Ofurhuginn austurríski Felix Baumgartner lést í dag 56 ára að aldri. Hann öðlaðist heimsfrægð árið 2012 fyrir að hafa fyrstur manna rofið hljóðmúrinn án farartækis. Erlent 17. júlí 2025 22:18
Þriggja daga þjóðarsorg í Austurríki Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Austurríki og mínútuþögn verður um allt landið klukkan tíu að staðartíma í dag í minningu um fórnarlömb skotárásar í framhaldsskóla í borginni Graz í gær. Erlent 11. júní 2025 06:51
Íslendingur í Graz: „Brotna niður við að hugsa um þessa foreldra“ Íslensk kona búsett í Graz segir borgina alla í áfalli eftir atburði dagsins en ellefu eru látnir og tugir særðir eftir skotárás á menntaskóla í borginni í morgun. Sjálf á hún tvö börn sem ganga í aðra menntaskóla í borginni. Hún segir árásina ýfa upp gömul sár en tíu ár eru síðan þrír létust í annarri árás í Graz. Erlent 10. júní 2025 23:24
Tíu látnir í Graz: Byssumaðurinn sagður vera gamall nemandi Hið minnsta tíu eru látnir og fleiri særðir eftir skotárás í menntaskóla í Graz í Austurríki í morgun. Árásarmaðurinn er meðal látinna en lögregla segir að hann sé fyrrverandi nemandi við skólann. Erlent 10. júní 2025 12:09
Níu látnir eftir skotárás í Austurríki Að minnsta kosti níu eru látnir og fleiri særðir eftir skotárás í menntaskóla í Graz í Austurríki í morgun. Árásarmaðurinn er talinn vera látinn. Erlent 10. júní 2025 09:15
Silfrið niðurstaðan fyrir Hannes og strákana hans Íslendingaliðið Alpla HC Hard varð að sætta sig við silfurverðlaunin eftir tap í úrslitaeinvíginu um austurríska meistaratitilinn í handbolta. Handbolti 6. júní 2025 20:12
Hnekkti dómi fyrrverandi kanslara fyrir meinsæri Áfrýjunardómstóll í Vínarborg sýknaði Sebastian Kurz, fyrrverandi kanslara Austurríkis, af ákæru um meinsæri og sneri þannig við dómi neðra dómstigs. Miklar vangaveltur eru um hvort að Kurz gæti nú átt afturkvæmt í austurrísk stjórnmál eftir að spillingarmál leiddi til afsagnar hans árið 2021. Erlent 26. maí 2025 13:44
Sigurvegarinn vill banna Ísrael Austurríski tónlistarmaðurinn JJ, sem vann Eurovision á dögunum með laginu Wasted Love, gagnrýnir þátttöku Ísraels í keppninni og segir að landið eigi ekki að fá að keppa á næsta ári. Hann segist ósáttur við kosningakerfið og vill sjá meiri gagnsæi í stigagjöfinni. Lífið 22. maí 2025 12:58
Ein óvæntustu úrslit Eurovision-sögunnar Að loknu dramatísku Eurovision kvöldi í Basel er margt sem fólk klórar sér í kollinum yfir. Austurríkismaðurinn JJ stóð óvænt uppi sem sigurvegari með lagi sínu Wasted Love. Veðbankar töldu allar líkur á sigri Svía sem komust ekki í topp þrjú. Fréttamaður hefur fylgst grannt með Eurovision síðustu ár, og getur með sanni sagt að heildarúrslitin hafi verið ein þau óvæntustu í sögunni. Lífið 18. maí 2025 11:17
Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Austurríki er sigurvegari Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2025. Söngvarinn JJ sigraði í Basel með laginu „Wasted Love“ fyrir hönd Austurríkis sem hefur nú unnið keppnina þrisvar sinnum. Lífið 17. maí 2025 22:59
Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Króatinn Ivan Horvat, leikmaður Alpla Hard í Austurríki, hefur verið dæmdur í fordæmalaust bann vegna grófs brots sem átti sér stað í leik við Bregenz á dögunum. Bannið er til 26 mánaða. Handbolti 8. maí 2025 10:31
Mynduðu stjórn án stærsta flokksins Leiðtogar þriggja miðjuflokka í Austurríki hafa náð saman um myndun nýrrar ríkisstjórnar, fimm mánuðum eftir þingkosningar fóru fram í landinu. Frelsisflokkurinn, sem er lengst til hægri í austurrískum stjórnmálum og hlaut flest atkvæði í kosningunum, stendur utan nýrrar stjórnar. Erlent 28. febrúar 2025 08:52