Spánn

Spánn

Höfuðborg: Madríd. Mannfjöldi: 48,6 milljónir (2025). Flatarmál: 505.990 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Shakira sýknuð

Kólumbíska söngkonan Shakira hefur verið sýknuð í hæstarétti Spánar í stórfelldu skattamáli sem teygir sig aftur til ársins 2011. Ríkissjóði Spánar hefur verið gert að endurgreiða tónlistarkonunni rúmlega 60 milljónir evra (rúmir 8,6 milljarðar króna) vegna málsins.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Skuggaskip sem sökk bar mögu­lega kjarna­kljúfa handa Kim

Rússneskt flutningaskip, sem tilheyrði hinum svokallaða „skuggaflota“ bar líklega tvo kjarnakljúfa þegar það sökk undan ströndum Spánar í Miðjarðarhafið. Skipið bar nafnið „Ursa Major“ og sökk seint að kvöldi þann 23. desember 2024 þegar verið var að sigla því, samkvæmt skráningu, til Vladivostok.

Erlent
Fréttamynd

Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu

Myndir hafa verið birtar af hvunndeginum um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius. Sex tilfelli hantaveiru hafa verið staðfest og þrír hafa látist af völdum veirunnar um borð í skipinu eftir að það lagði úr höfn í Argentínu í apríl.

Erlent
Fréttamynd

Fannst látinn á Mallorca eftir höfuð­á­verka

Breski fatahönnuðurinn, fyrirsætan og fyrrverandi raunveruleikastjarnan Jake Hall er látinn, aðeins 35 ára að aldri. Hann lést af sárum sínum eftir að hafa hlotið höfuðáverka á Mallorca þar sem hann var í fríi. Lögregla telur hann hafa barið höfði sínu í gegnum glerhurð í ölæði.

Lífið
Fréttamynd

Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Co­vid-19

Hantaveirusmit sem upp kom um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius er ekki upphaf heimsfaraldurs, að sögn heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heilbrigðisyfirvöld keppast nú við að rekja slóð fjölda fólks sem nýlega fór frá borði úr hollenska skipinu. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast.

Erlent
Fréttamynd

Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanarí­eyja

Þrír farþegar skemmtiferðaskipsins MV Hondius hafa verið fluttir á sjúkrahús í Hollandi, samkvæmt yfirmanni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Hantaveiran fór í dreifingu þar um borð á dögunum en þrír hafa látið lífið og að minnsta kosti fimm hafa veikst. Til stóð að sigla skipinu til Kanaríeyja en ekki hefur orðið að því enn, þar sem ráðamenn þar vilja ekki taka á móti skipinu.

Erlent
Fréttamynd

Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Ís­lands

Áhöfn skemmtiferðaskipsins MV Hondius hefur fengið heimild til að sigla til hafnar á Kanaríeyjum, þótt enn sé óákveðið hvar skipið mun leggja að bryggju. Heilbrigðisráðuneyti Spánar segir að þegar þangað verði komið, verði áhöfn og farþegar skoðaðir, meðhöndlaðir og sendir heim í samstarfi við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina og Sóttvarnastofnun Evrópu.

Erlent
Fréttamynd

Lýðræðislegur fas­isti í Evrópu

Þegar fólk rýnir í persónuleika og hugmyndir Donalds Trumps forseta er hann stundum kenndur við fasisma. Þá koma mótrök og sagt er að það sé rangt að kenna hann við stefnu í Evrópu á tuttugustu öld.

Skoðun
Fréttamynd

Námið ekki eins krefjandi og á Tene

Fiðluleikarinn Matthildur Traustadóttir fæddist á Ítalíu, ólst upp á Spáni, gekk í menntaskóla á Íslandi og lærir nú við tónlistarháskólann Oberlin í Bandaríkjunum. Lengi vel átti hún erfitt með að velja á milli balletts og fiðluleiks og spiluðu álagsmeiðsli inn í endanlegt val. Matthildur er ein fjögurra sem kemur fram á tónleikunum Ungum einleikurum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld.

Tónlist
Fréttamynd

Hvað veistu um... Tenerife?

Tenerife er stærsta eyjan í Kanaríeyjum og tilheyrir Spáni. Eyjan er þekkt fyrir hlýtt loftslag allt árið um kring, fallegar strendur og fjölbreytta náttúru sem gerir það að verkum að þetta er einn vinsælasti áfangastaður ferðamanna, ekki síst Íslendinga.

Lífið
Fréttamynd

„Ég er hrika­lega stoltur af honum“

Eftir að hafa fengið aðeins illt í föðurhjartað horfði Óskar Hrafn Þorvaldsson stoltur á son sinn Orra Stein Óskarsson vinna spænska konungsbikarinn með liði Real Sociedad í gærkvöldi.

Fótbolti
Fréttamynd

Stranda­glópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður að­gangur að flugi

Erling Ormar Vignisson og eiginkona hans, Dögg Gunnarsdóttir, telja að brotið hafi verið á farþegaréttindum þeirra þegar þeim var meinaður aðgangur að flugi með Neos sem þau keyptu hjá Heimsferðum og þeim boðið í staðinn að fljúga heim í gegnum London í næturflugi. Lög geri ráð fyrir að farþegar eigi að geta annaðhvort fengið endurgreitt eða sambærilega ferð í staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Flugvallarstarfsmenn á Tenerife í verk­föll yfir páskana

Yfir 1.500 flugvallarstarfsmenn víða á Kanaríeyjum boða verkföll í kringum páskana eftir að kjaraviðræður vinnuveitenda og stéttarfélaga sigldu í strand. Verkföll á Tenerife Sur-flugvelli, sem flogið er til frá Íslandi, eru fyrirhuguð 28. og 29. mars og 2.-6. apríl. 

Erlent
Fréttamynd

Ís­lenskir strákar í heimildar­mynd um skuggaheim karláhrifavalda

Louis Theroux tæklar Karlahvelið (e. the Manosphere) í nýjustu heimildarmynd sinni en það er samansafn áhrifavalda, vefsíðna og umræðuhópa sem boða róttæka karlmennsku og kvenfjandsamleg viðhorf. Theroux ræðir þar við menn sem hafa hagnast á slíku en á einum tímapunkti í myndinni bregður fyrir tveimur ungum íslenskum drengjum sem biðja um mynd með einum áhrifavaldinum.

Lífið