Sýrland

Vill að bandalagsríki einbeiti sér að ISIS
Bandaríkin, sem eru í forsvari fyrir hernaðarbandalagi hliðhollu uppreisnarmönnum í Sýrlandi, vilja að bandalagsríki einbeiti sér alfarið að baráttunni gegn hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki.

Rússar kanna hvort þeir hafi fellt leiðtoga Ríkis íslams
Leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams gæti hafa verið á meðal á fjórða hundrað liðsmanna samtakanna sem féllu í rússneskum loftárásum í Raqqa í lok maí, að sögn rússneskra stjórnvalda.

SÞ: Gífurlegt mannfall í loftárásum Bandaríkjanna og bandamanna í Raqqa
Hundruð óbreyttra borgara eru talin hafa fallið í orrustunni um Raqqa í Sýrlandi frá því í mars. Stríðsglæparannsakandi SÞ segir gífurlegt mannfall hafa hlotist af loftárásum Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra.

Sýrlenskir flóttamenn í Kanada nefna son sinn Justin Trudeau
Sýrlensku hjónin Muhammad og Afraa Bilan, sem komu frá Damascus í Sýrlandi til Kanada nú í vetur, eignuðust son á fimmtudag. Sonurinn hefur hlotið nafnið Justin Trudeau í höfuðið á forsætisráðherranum geðþekka.

Merkel hittir Pútín í Moskvu í dag
Angela Merkel Þýskalandskanslari og Vladímír Pútín Rússlandsforseta hafa hafa ekki fundað síðan árið 2015.

Hátt í 400 almennir borgarar verið felldir í árásum Bandaríkjahers
Tölur Bandaríkjahers yfir dauðsföll almennra borgara stangast á við tölur frá stýrihópum sem fylgjast með árásunum. Hópurinn Airwars gerir ráð fyrir að rúmlega þrjúþúsund almennir borgarar hafi látist í árásum Bandaríkjamanna á Sýrland og Írak.

Skotmarkið sagt vopn ætluð Hezbollah
Ísraelar skutu eldflaug á herstöð í Damaskus. Uppreisnarmenn segja skotmarkið vopnabúr bandamanna Sýrlandsstjórnar. Ísraelar segja sprenginguna samræmast stefnu þeirra um að koma í veg fyrir vopnasmygl.

Mikil sprenging á flugvellinum í Damaskus
Mikill eldur er sagður hafa blossað upp í kjölfar sprengingarinnar.

Frakkar segjast búa yfir sönnunum um ábyrgð bandamanna Assad
Tugir manna létu lífið þegar saríngas var notað í efnavopnaárás á bæinn Khan Sheikhoun þann 4. apríl síðastliðinn.

Assad sagður ráða yfir hundruð tonna af efnavopnum
Zaher al-Sakat, fyrrverandi hershöfðingi í sýrlenska stjórnarhernum, segir að Bashir al-Assad, sýrlandsforseti og her hans, búi yfir hundruð tonna af efnavopnum

Brottflutningur almennra borgara hafinn í fjórum sýrlenskum bæjum
Gert er ráð fyrir að um þrjátíu þúsund manns verði fluttir í öruggt skjól. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst ástandinu í sýrlensku bæjunum Foah, Kefraya, Madaya og Zabadini sem "hörmulegu.“

Komið að endalokum kalífadæmisins
Íslamska ríkið gefur eftir á öllum vígstöðum og setið er um höfuðvígi þeirra í Sýrlandi. Munu samtökin þurkast út með kalífadæminu, eða munu þau færast aftur yfir í skuggana?

Assad segir allar fregnir af efnavopnaárásinni uppskáldaðar
Bashir al-Assad, forseti Sýrlands, segir að allar fregnir af efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins í Idlib-héraði Sýrlands séu „100 prósent uppskáldaðar“. Hann segir ð Sýrlandsher hafi látið öll efnavopn sín af hendi árið 2013.

Trump: Stuðningur Rússa við Assad mjög slæmur fyrir mannkynið
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að Bandaríkin muni ekki auka þáttöku sína í hernaðarátökum í Sýrlandi þrátt fyrir efnavopnaárásir Bashir al-Assad, forseta Sýrlands. Trump gagnrýnir þó stuðning Rússa við Assad harðlega.

Spennuþrungið baksvið viðræðna Tillerson og Lavrov
Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands hittust í dag í Moskvu. Spennan hefur magnast í samskiptum ríkjanna í aðdraganda heimsóknar Tillerson til Rússlands.

Stórveldi hyggjast ekki beita Rússa þvingunum
G7 ríkin vilja ekki nýjar viðskiptaþvinganir gegn Rússum. Bandaríkin vilja koma forseta Sýrlands frá völdum. Gagnárás Bandaríkjanna á Shayrat-herflugvöllinn eyðilagði fimmtung sýrlenskra herflugvéla.

Pútín gefur lítið fyrir gagnrýni Vesturlanda vegna Sýrlands
Vladimír Pútín, gefur lítið fyrir gagnrýni vesturlanda í garð Rússa, vegna stuðnings þeirra við Assad, Sýrlandsforseta.

Segir eldflaugar Bandaríkjahers hafa eyðilagt 20 prósent sýrlensks herflugvélaflota
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna fullyrðir að 20 prósent af herflugvélaflota sýrlenska hersins hafi eyðilagst í árás Bandaríkjahers á Shayrat-herflugvöllinn í Sýrlandi. Hann segir að Bandaríkjamenn ætli ekki að sitja hjá með hendur í skauti.

Ráðherrar G7-ríkja reyna að fá Rússa til að láta af stuðningi við Assad
Hugmyndin er að fá Rússa til að láta af stuðningi sínum við Bashar al-Assad Sýrlandsforseta.

Bandamenn Assad hóta hefndum
Bandamenn Bashar al-Assad sýrlandsforseta sögðu í dag að þeir muni bregðast við öllum árásum á Sýrland.

Tillerson segir afstöðu Rússa vera mikil vonbrigði
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna gagnrýnir Rússa fyrir viðbrögð þeirra í kjölfar árásar Bandaríkjahers á herflugvöll í Sýrlandi.

Árásir á innsoginu
Bandaríkjamenn hófu í vikunni eldflaugaárásir á herstöðvar Sýrlandshers. Árásirnar komu í kjölfar þess að upplýst var um skelfilega efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins í bænum Khan Sheikhun þar sem fjölmargir óbreyttir borgarar létu lífið.

Árásin reynir á samband Bandaríkjanna við Rússa
Bandaríkjaher réðst á sýrlenskan herflugvöll. Sex hermenn féllu. Gengið er út frá því að ráðist hafi verið á bæinn Khan Sheikhoun frá flugvellinum og efnavopnum beitt. Rússar bregðast illa við árásinni.

Öryggisfræðingur telur Trump sprengja til að afvegaleiða almenning
Öryggisfræðingur telur árásina í Sýrlandi lið í að draga athygli almennings frá erfiðleikum ríkisstjórnar Trump.

Utanríkisráðherra: Árás Bandaríkjamanna skiljanlegt viðbragð við efnavopnaárásinni
Utanríkisráðherra segir árás Bandaríkjahers á herflugvöll í Sýrlandií nótt vera skiljanlegt viðbragð við efnavopnaárásunum á Idlib hérað fyrr í vikunni.

Assad segir árásina óábyrga og skeytingarlausa
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti hefur fordæmt eldflaugaárás Bandaríkjahers á herflugvöll sýrlenska stjórnarhersins í Homs í nótt.

Þetta vitum við um árás Bandaríkjanna á Sýrland
Að minnsta kosti sex eru látnir eftir eldflaugaárás Bandaríkjahers á herflugvöll sýlenska stjórnarhersins í Homs í nótt.

Pútín fordæmir árás Bandaríkjanna á Sýrland
Yfirvöld í Rússlandi hafa fordæmt árás Bandaríkjanna á Sýrland. Yfirvöld í Bretlandi styðja aðgerðirnar.

Gerðu árás á Sýrland
Bandaríski herinn skaut í kvöld um 50 Tomahawk eldflaugum að herflugvelli í Sýrlandi.

Trump íhugar hernaðaraðgerðir gegn al-Assad
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, telur það á sinni ábyrgð að hefna fyrir efnavopnaárásina á Khan Sheikhoun. Allt að hundrað fórust í árásinni. Varaforsetinn útilokar ekki hernaðaraðgerðir. Utanríkisráðherra Sýrlands segir herin