Viðskipti erlent

Sementsrisi dæmdur fyrir að fjár­magna Ríki íslams

Kjartan Kjartansson skrifar
Bruno Lafont, fyrrverandi forstjóri franska sementsfyrirtækisins Lafarge, hlaut sex ára fangelsisdóm fyrir verndargreiðslur sem fyrirtækið greiddi Ríki íslams og fleiri öfgahópum í Sýrlandi á síðasta áratug.
Bruno Lafont, fyrrverandi forstjóri franska sementsfyrirtækisins Lafarge, hlaut sex ára fangelsisdóm fyrir verndargreiðslur sem fyrirtækið greiddi Ríki íslams og fleiri öfgahópum í Sýrlandi á síðasta áratug. Vísir/EPA

Franskur dómstóll dæmdi sementsframleiðandann Lafarge til þess að greiða sekt og stjórnendur þess í fangelsi fyrir að fjármagna hryðjuverkasamtök í Sýrlandi. Fyrirtækið greiddi samtökunum svokallað verndargjald til þess að halda starfsemi sinni í landinu stríðshrjáða gangandi.

Lafarge er talið hafa greitt sýrlenskum hryðjuverkahópum, þar á meðal Ríki íslams, 6,5 milljónir dollara til þess að kaupa sér frið frá þeim frá 2013 til 2014. Fyrirtækið rak verksmiðju í norðanverðu Sýrlandi sem það keypti rétt áður en borgarastríðið í Sýrlandi hófst árið 2011.

Dómarinn í málinu sagði að greiðslurnar hefðu gert samtökunum kleift að ná völdum á náttúruauðlindum Sýrlands sem aftur gerði þeim mögulegt að fjármagna hryðjuverkárásir í Miðausturlöndum og Evrópu, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins.

„Það er dómnum ljóst að eini tilgangur þess að fjármagna hryðjuverksamtök var að halda sýrlensku verksmiðjunni gangandi af fjárhagslegum ástæðum. Greiðslur til hryðjuverkasamtaka gerði Lafarge kleift að halda áfram starfsemi,“ sagði dómarinn.

Fyrirtækið var dæmt til þess að greiða eina milljóna dollara í sekt, jafnvirði um 123 milljóna íslenskra króna. Sex fyrrverandi starfsmenn Lafarge voru dæmdir fyrir þeirra þátt í greiðslunum, þar á meðal Bruno Lafont, fyrrverandi forstjóri, sem hlaut sex ára dóm.

Rannsakað fyrir aðild að glæpum gegn mannkyninu

Fyrirtækið sætir enn rannsókn fyrir mögulega glæpi gegn mannkyninu vegna verndargreiðslnanna. Þá gerði það sátt um að greiða hundruð milljóna dollara í sekt í Bandaríkjunum vegna greiðslanna árið 2022.

Lafarge er nú runnið inn í svissneska fyrirtækið Holcim og er hluti af einum stærsta sementsframleiðanda heims.

Það kom við sögu í umdeildri umfjöllun Heimildarinnar um fyrirhugaða kolefnisförgunarstöð Carbfix í Hafnarfirði í fyrra. Fullyrti blaðið að Carbfix hefði gert viljayfirlýsingu við Lafarge í tengslum við förgunarstöðina og að fyrirtækið væri það eina í heiminum sem hefði verið dæmt fyrir glæpi gegn mannkyninu. Hvorugt var þó rétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×