Sádi-Arabía

Sádi-Arabía

Höfuðborg: Ríad. Mannfjöldi: 37,3 milljónir (2025). Flatarmál: 2.149.690 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Air Atlanta vinnur á­hættu­mat vegna á­rása Húta

Air Atlanta hefur dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði að sögn framkvæmdastjóra vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Vara við því að fara um flug­velli í Sádí-Arabíu

Hútar vara ferðalanga og flugfélög við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu í fyrstu yfirlýsingu sinni eftir mannskæða árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad höfuðborg Sádí-Arabíu í gær þar sem tólf létust og 309 manns særðust. Um er að ræða þriðju árásina á sádí-arabíska flugvelli í vikunni.

Erlent
Fréttamynd

Flug­vél beint annað eftir „slags­mál“ milli flug­manna

Farþegaþotu á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í Ísrael var beint til Sádí-Arabíu eftir „slagsmál“ milli tveggja flugmanna vélarinnar. Áhöfn vélarinnar naut aðstoðar farþega við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hendur hans fastar. Óljósar fregnir hafa borist af hníf í vélinni og að flugmenn úr hópi farþega hafi hjálpað til við lendingu.

Erlent
Fréttamynd

Að­eins samninga­viðræður geti leyst deiluna

Stjórnvöld í Íran segja að deilan við Bandaríkin og Ísrael verði aðeins leyst með diplómatískum leiðum. Þetta kom fram í máli Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í gær, degi eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hafi hafnað tillögu Írana um að opna Hormússund og binda enda á átökin.

Erlent
Fréttamynd

Æðstu her­foringjar halda skyndifund um á­rásir Húta

Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa boðað yfirmenn herafla Tyrklands og Pakistan á fund þar sem ræða á hvernig ríkin tvö geta stutt Sáda vegna árása Húta í Jemen. Æðstiklerkur Sádi-Arabíu hefur kallað eftir því að hermenn konungsríkisins verði tilbúnir til að leggja lífið að veði í baráttunni gegn Hútum.

Erlent
Fréttamynd

Bretar ætla að að­stoða Sáda gegn Hútum

Bretar ætla að aðstoða Sáda í átökum þeirra gegn Hútum, með því að veita „varnartengda“ eldsneytisþjónustu. Breskar eldsneytisflugvélar verða senda til Sádi-Arabíu og notaðar til að dæla eldsneyti á herþotur Sáda.

Erlent
Fréttamynd

Kín­verjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda

Ráðamenn í Kína hafa sent skilaboð til ráðamanna í Íran og beðið klerkastjórnina um hjálp við að halda aftur af Hútum í Jemen. Það er eftir að ríkisstjórn Sádi-Arabíu, sem selur talsvert af olíu til Kína, bað Kínverja um aðstoð. Árásir Húta á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og lokun sunnanverðs Rauðahafs fyrir siglingum Sáda hafa komið verulega niður á getu konungsríkisins til að flytja olíu úr landi.

Erlent
Fréttamynd

Hútar skutu niður her­þotu Sáda

Hútar í Jemen segjast hafa skotið niður herþotu frá Sádi-Arabíu í dag. Þá segjast þeir einnig hafa gert umfangsmiklar árásir á olíuinnviði í Sádi-Arabíu á sama tíma og Sádar hafa látið sprengjum rigna yfir Húta.

Erlent
Fréttamynd

Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um

Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað.

Erlent
Fréttamynd

Lokuðu einni mikil­vægustu olíu­leiðslunni

Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir.

Erlent
Fréttamynd

Miklar hækkanir á olíu­mörkuðum í dag

Verð hráolíu hefur rokið upp í dag vegna áhyggja af enn frekari truflunum á flutningsleiðum olíu um heiminn, sem rekja má til aukinna og harðnandi átaka í Jemen. Hútar tóku í dag mikilvægan strandbæ við Rauðahaf sem mun gera þeim mun auðveldara að gera árásir á olíuflutningaskip á Rauðahafi.

Erlent
Fréttamynd

Pakistanar sögðu klerka­stjórninni að koma böndum á Húta

Erindrekar frá Pakistan komu í dag viðvörun á framfæri við ráðamenn í Íran. Klerkastjórnin var beðin um að koma böndum á Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra á Sádi-Arabíu, ellegar væri hætta á því að átök á svæðinu gætu stigmagnast verulega.

Erlent
Fréttamynd

Skutu tugum eld­flauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu

Hútar skutu í nótt tugum dróna og eldflauga að fjórum borgum í Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árásirnar og ollu þær meðal annars skemmdum á olíuvinnsluinnviðum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu heita umfangsmiklum viðbrögðum en átök hafa harðnað í Jemen að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Klerka­stjórnin missir tökin

Ráðamenn í Íran vöruðu í dag við því að þeir gætu gert árásir á bandarísk skotmörk í Mið-Austurlöndum og á olíuvinnsluinnviði í nágrannaríkjum sínum. Klerkastjórnin virðist þó vera að missa tökin á Hormússundi og þar af leiðandi missa vogarafl í mögulegum viðræðum við Bandaríkjamenn.

Erlent
Fréttamynd

Íranir segja við­ræður á lokametrunum

Ráðamenn í Íran segja að samkomulag um framtíðarstjórn Hormússunds sem erindrekar ríkisins hafa unnið að í Óman vera á lokametrunum. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gefið til kynna að samkomulag gæti verið opinberað í þessari viku. Opnun sundsins gæti verið stórt skref í að binda enda á átök Bandaríkjanna og Íran.

Erlent
Fréttamynd

Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfir­töku á Electronic Arts

Hópur fjárfesta, sem leiddur er af PIF, opinberum fjárfestingasjóði Sádi-Arabíu og inniheldur meðal annars Jared Kushner, tengdason Donalds Trump, hefur lokið kaupunum á leikjafyrirtækinu Electronic Arts. Fyrirtækið er hvað þekktast fyrir leiki eins og FIFA, Madden og aðra íþróttaleiki, auk Sims, Battlefield og Mass Effect, svo einhverjir séu nefndir.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Írönum hótað hefndum eftir á­rás á her­stöð Banda­ríkjanna

Íranir virðast hafa gert árásir á herstöð Bandaríkjanna í Jórdaníu í nótt en samkvæmt hermálayfirvöldum vestanahafs tókst að skjóta niður allar flaugar sem skotið var á loft. Þá hefur verið greint frá því að Bandaríkjamenn og Sádar hafi gert árás á skotmörk í Írak, þaðan sem sveitir fjármagnaðar af Íran hafa gert árásir síðustu daga.

Erlent
Fréttamynd

Ekkert lát á á­rásum Banda­ríkjanna og Íran

Bandaríkin gerðu árás á kaupskip sem reyndi að rjúfa hafnarbann íranskra hafna, að sögn Bandaríkjahers. Jafnframt beindu Íranir áfram spjótum sínum að bandarískum herstöðvum og mannvirkjum á Persaflóa. Sádi-Arabar gerðu hefndarárás á Jemen fyrir árásir Húta á sádi-arabísk olíuskip.

Erlent
Fréttamynd

Af­þakkaði milljón Banda­ríkja­dala fyrir eitt uppi­stand

Grínistinn Weird Al Yankovic segist hafa neitað að koma fram á grínhátíðinni í Ríad í Sádi-Arabíu síðasta haust þrátt fyrir að honum hafi boðist sjö stafa tala að launum. Hátíðin vakti mikið umtal og gagnrýni en fjöldi heimsfrægra grínista kom þar fram.

Lífið
Fréttamynd

Sádar verði að viður­kenna til­vist Ísrael

Donald Trump segir að samkomulag sem skrifað var undir í gær milli Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu, um að koma upp kjarnorku í síðarnefnda ríkinu, feli í sér að Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael. Þar að auki verði þeir að opna formlega á pólitísk samskipti ríkjanna á milli, með því að verða aðilar að Abraham-sáttmálunum svokölluðu.

Erlent
Fréttamynd

Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali

Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hútar réðust á olíu­flutninga­skip frá Sádi Arabíu

Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað.

Erlent