Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Seljalandsfoss ehf. hefur ákveðið að lækka bílastæðagjöld fyrir almennar fólksbifreiðar við fossinn um 10%, eða úr 1.000 krónum í 900 krónur. Innlent 4.6.2026 15:04
Sumaráætlun Herjólfs frestað Siglingum Herjólfs samkvæmt sumaráætlun hefur verið frestað. Ástæðan er sögð sú að ferjan sigli enn á einni skrúfu. Innlent 2.6.2026 17:25
Fengu ekki Baldur Vegna veður- og ölduspár fyrir helgina vara forsvarsmenn Herjólfs við því að aðstæður geti verið erfiðar með tilliti til siglinga til Landeyjahafnar. Innlent 22.5.2026 11:38
„Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innviðaráðherra segir að reynt hafi verið að fá belgískt fyrirtæki, sem tekur við dýpkun Landeyjahafnar frá og með haustinu, fyrr að verkinu. Hann segist þokkalega ánægður með þær aðgerðir sem ráðuneytið kynnti í gær til að bæta samgöngur til Vestmannaeyja. Innlent 29. apríl 2026 13:02
„Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Íbúi í Vestmannaeyjum sem hefur skrifað pistil daglega sautján daga í röð til að mótmæla ófremdarástandi í samgöngum við Eyjar segir Vegagerðina bregðast Eyjamönnum. Skipuleggjandi Puffin stingur upp á sjö tíma siglingu með Herjólfi fyrir ráðamenn til að þeir átti sig á stöðunni. Innlent 28. apríl 2026 21:01
„Botninum hefur verið náð“ Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gær vegna ólgusjós og vélarbilana. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ófremdarástand ríkja í samgöngumálum í Eyjum. Botninum hafi einfaldlega verið náð. Innlent 28. apríl 2026 13:02
Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af. Innlent 15. apríl 2026 18:07
„Þetta er erfiður mánudagur“ Bilun kom upp í vélbúnaði farþegaferjunnar Herjólfs og siglir skipið nú á takmörkuðu afli. Siglingartími hefur lengst vegna þessa. Ferðir eru enn á áætlun þrátt fyrir bilunina og siglir Herjólfur til Þorlákshafnar í stað Landeyjarhafnar vegna aðstæðna í höfninni. Innlent 13. apríl 2026 15:37
Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar Danska fyrirtækið DHI vinnur nú að tillögum er varða lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar í samvinnu við Vegagerðina. Reiknað er með niðurstöðum vinnunnar nú í vor og í kjölfarið verður það stjórnvalda að ákveða næstu skref. Innlent 4. apríl 2026 18:01
Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. Innlent 26. mars 2026 21:21
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. Innlent 4. mars 2026 08:30
Hrunvarnir við Holtsnúp verði tilbúnar í ágúst Vegagerðin hefur boðið út hrunvarnir meðfram þjóðvegi 1 við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum. Staðurinn hefur verið til skoðunar um nokkurt skeið og lét Vegagerðin hanna fyrirhugað mannvirki í kjölfar banaslyss sem þar varð í mars 2025. Innlent 4. mars 2026 08:25
„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp. Innlent 3. mars 2026 13:02
Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Af þeim sökum er ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið er að því að fá varahluti erlendis frá. „Það er algerlega óásættanlegt að ekki verið til taks skip til að dýpka næstu daga og vikur, við því þarf Vegagerðin að bregðast,“ segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. Innlent 2. mars 2026 17:07
Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Björgunarsveitir hafa síðdegis og í kvöld aðstoðað vegfarendur sem lent hafa í vandræðum á hringveginum undir Eyjafjöllum. Veginum var á tímabili lokað vegna þess að bílar sátu fastir. Innlent 21. febrúar 2026 18:39
Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet Það er líf og fjör á sveitabæ í Landeyjunum þessa dagana því nýlega gaut íslenska tíkin Þekla ellefu hvolpum, sjö tíkum og fjórum rökkum. Eigandinn segist aldrei hafa vitað af íslenskum fjárhundi, sem hefur átt svona marga lifandi hvolpa í goti. Innlent 18. febrúar 2026 20:04
Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla Hringveginum var lokað við Skóga á Suðurlandi vegna umferðarslyss. Tveir voru fluttir á Selfoss til aðhlynningar. Innlent 16. febrúar 2026 17:39
Dr. Gunni flytur í Fljótshlíðina í faðm Helenu Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni, hefur sett íbúð sína að Laugavegi 5 á leigu og er að flytja í Fljótshlíðina til kærustu sinnar, Helenu Hansdóttur Aspelund. Eftir átta ár hjá Þjóðskrá er hann hættur þar og hefur brátt störf í Grunnskólanum á Hellu sem leiðbeinandi og ritari. Lífið 12. febrúar 2026 09:51
Alan Carr á Íslandi Breski grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Alan Carr er staddur á Íslandi og hefur ferðast víða um landið undanfarna daga. Lífið 6. febrúar 2026 11:39
Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Vegagerðin segist hafa skoðað að færa þjóðveg 1 fjær Steinafjalli en telur það framtíðarlausn sem sé töluvert dýrari en hrunvarnir sem bjóða á út á næstunni. Koma þurfi upp hrunvörnum víðar en við Steinafjall þar sem erlend ferðakona lést þegar grjót hrundi á bíl hennar í fyrra. Innlent 20. janúar 2026 14:10
Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Vegagerðin hyggst setja upp svokallaðar grjótgrindur við Steinafjall þar sem banaslys varð í fyrra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa óskaði eftir úrbótum í nýrri skýrslu. Innlent 19. janúar 2026 18:41
Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin vinni þegar í stað að úrbótum á hringveginum við Steinafjall á Suðurlandi eftir að erlend ferðakona lést þegar stærðarinnar grjót féll á bíl hennar. Líkur á slíkum slysum eru sagðar hafa aukist vegna þyngri umferðar um veginn. Innlent 19. janúar 2026 12:11
Hér sést hvar jarðgöngin eiga að opnast á Heimaey Stjórnarformaður félags um Vestmannaeyjagöng vonast til þess að hægt verði að aka í jarðgöngum til Eyja eftir tíu ár. Stefnt er á að rannsóknarboranir hefjist í vor. Félagið hefur boðað til kynningarfundar í Eyjum í kvöld um verkefnið. Innlent 15. janúar 2026 21:20
Tvær akgreinar í hvora átt frá Rauðavatni að Markarfljóti Á ársþingi Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga sem haldið var 23 – 24 október 2025 komu saman kjörnir fulltrúar allra sveitarfélaga á Suðurlandi. Ársþingið er vettvangur þar sem sameiginleg sýn sveitarfélaga er lögð fram ásamt áherslumálum þar sem sameiginlegur flötur hefur náðst. Skoðun 15. janúar 2026 10:32