Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Nepalar völdu sér í gær nýja lifandi gyðju. Tveggja ára stúlka varð fyrir valinu og var hún borin frá heimili sínu í húsasundi í Katmandú, höfuðborg landsins, og flutt í hof. Þar mun hún búa þar til hún nær kynþroska. Erlent 1.10.2025 14:17
Fyrstur til að skíða niður Everest án súrefnis Andrzej Bargiel, 37 ára Pólverji, varð í vikunni fyrsti maður sögunnar til að skíða niður Everest, hæsta fjall heims, án súrefnistanks. Lífið 26.9.2025 07:41
Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Sushila Karki hefur verið útnefnd forsætisráðherra Nepal, fyrst kvenna. Mannskæð mótmæli og óeirðir hafa brotist út í landinu síðustu daga og ráðherrar í framhaldinu sagt af sér. Erlent 13.9.2025 09:38
„Greyið, hann þarf að horfa á mig deyja“ Íslensk kona lenti í lífsháska þegar öndunarvegur hennar lokaðist á leið í grunnbúðir Everest. Ellefu sjerpar báru hana í fjóra tíma áður en hún var flutt með þyrlu til Katmandú. Við útskrift af spítala var ferðatrygging hennar ekki tekin gild svo hún þurfti sjálf að leggja út 1,4 milljón króna. Sjóvá greiddi henni peninginn til baka en hún furðar sig á vinnubrögðunum. Lífið 27. júlí 2025 07:06
Íhuga að loka Everest öðrum en reyndu göngufólki Aðeins reynt fjallgöngufólk fengi leyfi til þess að klífa Everest, hæsta fjalls heims, samkvæmt lagafrumvarpi sem er til meðferðar í Nepal. Frumvarpinu er ætlað að draga úr umferð um fjallið og bæta öryggi göngufólks. Erlent 29. apríl 2025 14:14
Vekja athygli á bágri stöðu nepalskra kvenna með fjallgöngu Hópur íslenskra og nepalskra fjallgöngukvenna gengu á dögunum upp á tindinn Lobuche í Himalayafjöllum til að vekja athygli á stöðu kvenna í Nepal og í fjallgöngugeiranum. Lobuche er rúmlega sex þúsund metra hár. Innlent 2. nóvember 2024 23:37
„Leiðangurinn verður kvennaleiðangur að öllu leyti“ Eftir viku halda tvær íslenskra konur, Soffía Sigurgeirsdóttir og Lukka Pálsdóttir, til Nepal til að ganga upp á austurtind Lobuche í Himalayafjöllum í Nepal. Upp að tindi eru 6.119 metrar. Soffía og Lukka ganga til stuðnings sjerpa fjallgöngukonum í Nepal. Lífið 13. október 2024 07:03
Skófundur á Everest gæti leyst hundrað ára gamla ráðgátu Skófundur á Everest gæti leyst hundrað ára gamla ráðgátu um það hvort fjallagarparnir Andrew Comyn Irvine og George Mallory hafi náð að toppa Everest, hæsta fjall heims, fyrstir í sögunni. Erlent 12. október 2024 10:35
Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Að minnsta kosti 120 manns eru látnir í Nepal síðan á föstudaginn eftir gífurlega úrkomu sem kom af stað flóðum og skriðuföllum þar í landi. Fjöl margra er enn saknað. Erlent 29. september 2024 11:49
Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Minnst 66 eru látnir í Nepal eftir flóð og skriðuföll vegna gífurlegrar úrkomu sem hefur staðið yfir síðan á föstudag. Búist er við að áfram haldi að rigna um helgina. Ekki er vitað um afdrif 69 manna. Erlent 28. september 2024 18:50
Átján fórust í flugslysi í Nepal Átján fórust þegar flugvél hrapaði til jarðar skömmu eftir flugtak í Kathmandu höfuðborg Nepal í morgun. Flugmaðurinn er sá eini sem komst lífs af en hugað er að honum á sjúkrahúsi. Erlent 24. júlí 2024 10:33
Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Þúsundir göngugarpa hafa klifið Everest, hæsta fjall jarðar, frá því að toppnum var fyrst náð árið 1953. Einhverjir þeirra hafa hins vegar skilið eftir sig fleira en bara fótsporin. Nepölsk yfirvöld áætla að það taki mörg ár að fjarlægja rusl frá tjaldbúðum sem þau telja á bilinu 40-50 tonn. Erlent 7. júlí 2024 23:33
Sló eigið met á Everest Nepalski Sherpinn Kami Rita sló heimsmet í gær þegar þegar hann komst á topp hæsta fjalls í heimi, Everest, í tuttugasta og níunda sinn. Erlent 13. maí 2024 08:50
Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Íslenska þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir vann þríþrautarmót í Nepal um helgina. Mótið reyndi vissulega á okkar konu en aðalævintýrið var þó að komast aftur í burtu frá Nepal eftir keppnina. Sport 29. apríl 2024 08:31
Everest-farar skikkaðir til að hirða eftir sig skítinn og safna í poka Óhemjumikið magn sorps og úrgangs hefur safnast saman á Everest síðustu ár og áratugi, samfara auknum ágangi klifurgarpa á fjallið. Nú er svo komið að yfirvöld á svæðinu hafa fengið nóg og verða menn héðan í frá skikkaðir til að hirða upp eftir sig skítinn. Erlent 22. mars 2024 06:58
TikTok eyðileggi samhljóm þjóðarinnar Fjarskipta- og upplýsingatækniráðherra Nepal hefur gefið út að samfélagsmiðillinn TikTok verði héðan í frá bannaður þar. Segir ráðherrann að miðillinn sé notaður til þess að dreifa efni sem skemmir fjölskyldur og eyðileggur „samhljóm“ þjóðarinnar. Erlent 14. nóvember 2023 02:58
Minnst 150 látnir eftir jarðskjálftann í Nepal Meira en 150 eru látnir eftir jarðskjálftann sem reið yfir vesturhluta Nepal í gær. Skjálftinn var 5,6 að stærð. Erlent 4. nóvember 2023 09:50
Tugir látnir eftir jarðskjálfta í Nepal Að minnsta kosti 69 eru látnir eftir harðan jarðskjálfta í Nepal. Eyðileggingin er töluverð og fannst skjálftinn, sem var 5,6 að stærð, víða. Erlent 4. nóvember 2023 00:00
Gekk örna sinna á fjallstoppi í Nepal í mínus 27 Tómas Guðbjartsson, hjartaskurðlæknir, náði því í morgun að standa á tindi Imje Tse í Nepal. Ferðin upp gekk vel að hans sögn. Hann þurfti þó að glíma við magapest í um 5.900 metra hæð og segir það ekki hafa farið fram hjá öðrum á leið upp. Lífið 26. október 2023 20:01
Lést eftir að hafa verið send út í kofa á blæðingum Sextán ára stúlka lést í Nepal á miðvikudag eftir að hafa verið látin dvelja í litlum kofa fyrir utan heimili sitt vegna þess að hún var á blæðingum. Anita Chand lá sofandi í skýlinu þegar snákur beit hana og lést í kjölfarið. Erlent 11. ágúst 2023 09:34
Sló met yfir fjölda ferða á topp Everest Nepalski sjerpinn Kami Rita hefur slegið met yfir fjölda ferða á topp Everest, hæsta fjall heims. Hann komst á topp Everest í 27. sinn fyrr í dag, þremur dögum eftir að annar sjerpi, Pasang Dawa, hafði jafnað met hans. Erlent 17. maí 2023 07:41
Tómas og Dendi stefna á að gefa öllum nemendum í Taksindu flíspeysu Hjartaskurðlæknirinn Tómas Guðbjartsson stóð nýverið fyrir söfnun til styrktar fátækum og munaðarlausum börnum í Taksindu í Nepal ásamt Íslandsvininum og sjerpanum Dendi. Á föstudag fengu sjötíu börn og tuttugu kennarar afhentar flíspeysur og yfir tvö hundruð nemar fengu skólabækur og penna. Vinirnir stefna á gefa öllum nemendum þorpsins peysur, en mjög kalt er í Nepal um þessar mundir og lítið hægt að kynda. Lífið 5. mars 2023 17:08
Annar flugritinn sendur til Frakklands til greiningar Yfirvöld í Nepal hafa sent annan af flugritum flugvélar sem brotlenti á sunnudaginn til Frakklands til rannsóknar. Um er að ræða þann flugrita sem geymir gögn um flugferðina en hinn flugritinn, sem tekur upp samskipti flugmanna í stjórnklefa flugvélarinnar verður rannsakaður í Nepal. Erlent 17. janúar 2023 14:14
Mannskæðasta slys í þrjá áratugi Að minnsta kosti 68 létust í flugslysi í Nepal í morgun. 72 voru um borð og telja björgunarsveitir ólíklegt að nokkur hafi komist lífs af. Mannskæðara flugslys í Nepal hefur ekki orðið síðan 1992. Erlent 15. janúar 2023 21:28