Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Kjörstjórn Ísraels hóf talningu utankjörfundaratkvæða í nótt. Gert er ráð fyrir að talningin standi fram á fimmtudagskvöld, en telja þarf um 500.000 atkvæði frá hermönnum og stjórnarerindrekum. Í frétt Guardian segir að ekki sé búist við því að niðurstöður talningar breyti niðurstöðunum. Erlent 29.10.2026 06:29
Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Bæði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og Gadi Eisenkot, fyrrverandi yfirmaður ísraelska hersins og leiðtogi stjórnarandstöðunnar, segjast ætla að mynda ríkisstjórn. Það er þrátt fyrir að hvorug fylking hafi náð að tryggja sér meirihluta þingmanna í Knessetinu í kosningunum sem haldnar voru í Ísrael í gær. Erlent 28.10.2026 10:30
Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Dorrit Moussaieff, athafnakona og fyrrverandi forsetafrú, er stödd á Acadia-strönd í Ísrael og birti þaðan mynd af kakkalökkum. Hún veltir fyrir sér á samfélagsmiðlum hvort kakkalakkarnir valdi fólki skaða því þeir hafi tekið á móti henni með vængina útbreidda. Lífið 28.10.2026 09:55
Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Beint flug milli Ísraels og Íslands er fyrirhugað frá júní á næsta ári. Ísraelska flugfélagið Arkia hefur bætt Keflavík við áfangastaði sína og auglýsir beinar ferðir hingað til lands á eigin vef. Viðskipti innlent 19. október 2026 11:04
Neyðarlending eftir sprengjuhótun Flugvél Austrian Airlines á leið frá Ísrael til Austurríkis þurfti óvænt að lenda á flugvelli í Búlgaríu eftir sprengjuhótun. Málið er nú til rannsóknar. Erlent 19. október 2026 06:56
Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Ísraelskir landtökumenn réðust í dag á hóp evrópskra erindreka á Vesturbakkanum í Palestínu. Belgísk stjórnvöld og Ísraelsher fordæma árásina en ísraelska forsætisráðuneytið dregur frásögnina í efa. Erlent 17. október 2026 22:25
Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Tugir ísraelskra landtökumanna brenndu ólífutré og réðust á Palestínumenn sem voru að safna ólífum. Þar að auki réðst hópur manna á bandarískan ljósmyndara á vegum Washington Post en þeir börðu hana og rændu. Mennirnir réðust einnig á palestínska samstarfsmenn hennar. Erlent 16. október 2026 13:47
Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beitt frekari refsiaðgerðum gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum (ICC). Það var opinberað nokkrum klukkustundum eftir að fyrrverandi dómari við dómstólinn fékk friðarverðlaun Nóbels en Marco Rubio utanríkisráðherra segir aðgerðunum ætlað að lama starfsemi dómstólsins. Erlent 9. október 2026 15:13
Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að því að ferðamönnum frá Ísrael var mismunað á íslenskum veitingastað í fyrra þegar eigandi vildi ekki afgreiða þau og rak þau út. Hann vildi ekki afgreiða þau á grundvelli þjóðernis þeirra. Innlent 9. október 2026 14:02
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú, segist vona að ísraelskir kjósendur hafni Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og öðrum sem eru með honum í ríkisstjórn. Þörf væri á nýrri ríkisstjórn sem hefði trú á tveggja ríkja lausninni svokölluðu. Erlent 8. október 2026 21:26
„Skilgreinandi augnablik“ Heimir Hallgrímsson sagði að írska landsliðið myndi líta til baka á þetta landsleikjahlé sem „skilgreinandi augnablik“ í sögu sinni, eftir gærkvöldið þar sem deilur komu upp í 1-1 jafntefli Íra gegn Ísrael. Fótbolti 5. október 2026 07:47
Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Heimir Hallgrímsson, þjálfari írska karlandsliðsins í fótbolta, segir UEFA þurfa að skoða sín mál aðspurður um leik við Ísrael í dag. Fótbolti 4. október 2026 12:02
Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Sérkennilegar spurningar ísraelskra blaðamanna, þar á meðal einhverjar sem áttu ekkert skilt við fótbolta, ollu því að blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var slitið snemma. Þá þurfti að koma einum blaðamanni burt í öryggisfylgd. Fótbolti 3. október 2026 13:57
Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Aðstoðarflugmaður í flugi Flydubai FZ1073, sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív á miðvikudag, lagði á ráðin um hryðjuverk. Hann réðst á flugstjórann inni í flugstjórnarklefanum með neyðaröxi og reyndi að brotlenda flugvélinni en farþegar og áhöfn yfirbuguðu hann. Alls voru ríflega hundrað og sjötíu manns um borð í vélinni. Erlent 3. október 2026 09:47
Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Farþegar hjálpuðu til við að yfirbuga annan flugmann vélar Flydubai sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív í morgun. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir flugmanninn hafa stungið kollega sinn í flugstjórnarklefanum með hníf og hafi ætlað að brotlenda vélinni. Erlent 30. september 2026 15:44
Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Farþegaþotu á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í Ísrael var beint til Sádí-Arabíu eftir „slagsmál“ milli tveggja flugmanna vélarinnar. Áhöfn vélarinnar naut aðstoðar farþega við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hendur hans fastar. Óljósar fregnir hafa borist af hníf í vélinni og að flugmenn úr hópi farþega hafi hjálpað til við lendingu. Erlent 30. september 2026 09:28
Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Ísrael tók á móti Írlandi í B-deild Þjóðadeildarinnar og þurfti leikurinn að vera spilaður í Ungverjalandi vegna átaka í ríkjum í kringum Ísrael. Írland var mun betri aðilinn í leiknum og vann leikinn 3-0. Fótbolti 27. september 2026 18:16
Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, segist vilja að Ísraelar fari í stríð á Vesturbakkanum, leysi Palestínustjórnina upp og beiti þar sambærilegum hernaðaraðferðum og á Gasaströndinni. Hann segist jafnframt vilja innlima hluta Gaza og landsvæði í Líbanon allt norður að Litani-fljóti. Erlent 27. september 2026 12:48
Neitar að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Shlomi Barzel, samskiptastjóri ísraelska knattspyrnusambandsins, neitaði að biðjast afsökunar á niðrandi færslu um Heimi Hallgrímsson, landsliðsþjálfara Írlands, sem hann birti á samfélagsmiðlum ísraelska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 27. september 2026 11:45
Leikmaður Írlands dregur sig úr leikmannahóp gegn Ísrael Mikill hiti er innan írska knattspyrnusambandsins fyrir leik liðsins gegn Ísrael í Þjóðadeildinni. Kosningar voru innan leikmanna félagsins hvort þeir ættu að spila og meirihlutinn sagði já en Gavin Bazunu hefur dregið sig úr landsliðshópnum. Fótbolti 26. september 2026 20:17
Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands sat fyrir svörum á blaðamannafundi eftir kaotískan morgun. Írland mun mæta til leiks gegn Ísrael en ísraelskir blaðamenn á fundinum sóttu hart að Heimi og fulltrúum írska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 26. september 2026 14:00
Ringulreið hjá Heimi og leikur við Ísrael í uppnámi Mikil óvissa er uppi varðandi leik Írlands við Ísrael í Þjóðadeild UEFA á morgun. Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var frestað, hans lið hefur enn ekki mætt til æfinga og það berast af því óstaðfest tíðindi að leikmenn séu hættir við að gefa kost á sér í leikinn. Fótbolti 26. september 2026 10:39
Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sérstök þingnefnd um kosningar meinaði í vikunni stjórnmálaflokkum landsins sem leiddir eru af Aröbum að bjóða fram í þingkosningum næsta mánaðar. Fastlega er búist við því að hæstiréttur Ísrael muni ógilda ákvörðun nefndarinnar, sem er nánast eingöngu skipuð þingmönnum. Erlent 25. september 2026 11:47
Frægt fólk meðal handtekinna í New York Yfir eitt hundrað voru handteknir á fjölmennum mótmælum í New York í gær í tengslum við ræðu Benjamins Netanyahu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þekktir einstaklingar voru á meðal þeirra sem handteknir voru. Erlent 25. september 2026 07:25