Sigurjón Bragi náði áttunda sæti Sigurjón Bragi Geirsson náði áttunda sæti í Bocuse d´Or heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu sem lauk í Lyon dag. Keppnin er sú virtasta í heiminum á sviði matreiðslu. Matur 23. janúar 2023 20:51
Macron ætlar í mikla hernaðaruppbyggingu Emmanuel Macron, forseti Frakklands, tilkynnti í dag áætlun sína um þriðjungs aukningu á fjárútlátum til varnarmála. Samkvæmt áætlun hans á að verja 413 milljörðum evra til hersins á árunum 2024 til 2030, en á síðustu sambærilegu fjárhagsáætlun, frá 2019 til 2025, voru sömu fjárútlát 295 milljarðar. Erlent 20. janúar 2023 15:56
Sigurjón Bragi keppir í Bocuse d´Or Matreiðslumaðurinn Sigurjón Bragi Geirsson mun keppa fyrir hönd Íslands í virtustu matreiðslukeppni heims, Bocuse d´Or, sem haldin verður í Lyon í Frakklandi næstkomandi sunnudag og mánudag. Matur 20. janúar 2023 14:28
Samþykkja ekki enn skriðdrekasendingar til Úkraínu Boris Pistorius, nýr varnarmálaráðherra Þýskalands, sagði við blaðamenn í Ramstein í Þýskalandi í dag að engin ákvörðun hefði verið tekin um það að senda Leopard 2 skriðdreka til Úkraínu. Hann sagði þó að ráðuneyti hans myndi fara yfir birgðastöðu Þjóðverja og kanna hve marga skriðdreka hægt væri að senda og hve fljótt, verði slík ákvörðun tekin á næstunni. Erlent 20. janúar 2023 14:25
Megan Rapione styður Söru og skammar Lyon Bandaríska ofurstjarnan Megan Rapinoe hefur sent Lyon tóninn fyrir það hvernig félagið kom fram við Söru Björk Gunnarsdóttur. Fótbolti 18. janúar 2023 14:19
Elsta manneskja heims er látin Systir Andre, frönsk nunna sem tók á síðasta ári við titlinum „elsta manneskja heims“, er látin. Hún var 118 ára gömul og hefði orðið 119 í næsta mánuði. Erlent 18. janúar 2023 09:00
Forseti franska knattspyrnusambandsins sakaður um kynferðislega áreitni Forseti franska knattspyrnusambandsins, Noël Le Graët, er til rannsóknar vegna kynferðislegrar áreitni. Fótbolti 17. janúar 2023 17:46
Annar flugritinn sendur til Frakklands til greiningar Yfirvöld í Nepal hafa sent annan af flugritum flugvélar sem brotlenti á sunnudaginn til Frakklands til rannsóknar. Um er að ræða þann flugrita sem geymir gögn um flugferðina en hinn flugritinn, sem tekur upp samskipti flugmanna í stjórnklefa flugvélarinnar verður rannsakaður í Nepal. Erlent 17. janúar 2023 14:14
„Ég var búin að steingleyma að við hefðum gert þetta“ „Þetta er stórskemmtilegt. Ég var búin að steingleyma að við hefðum gert þetta. Svo fékk ég bara email í morgun með þeim skilaboðum að skeytið væri fundið. Það tók mig smá tíma að átta mig á hverju um væri verið að tala,“ segir Brynhildur Yrsa Valkyrja um flöskuskeyti sem sett var í sjóinn í Hafnarfirði í maí árið 2020. Skeytið fannst á vesturströnd Frakklands um helgina. Lífið 15. janúar 2023 20:55
Guðmundur Felix fagnar tveggja ára afmæli Guðmundur Felix Grétarsson fagnar því að tvö ár séu liðin frá því að hann fékk ágræddar hendur. Frönsk sjónvarpsstöð tók hús á honum í dag. Lífið 13. janúar 2023 21:36
Hafa áhyggjur af öryggi fólks eftir árás á lestarstöð Samkvæmt skýrslu sem lögð hefur verið fyrir franska þingið þarf að hafa hraðar hendur varðandi öryggisáætlun í kringum Ólympíuleikana sem fara fram í París á næsta ári. Tíðindin berast í skugga hnífsstunguárásar á lestarstöð í borginni í fyrrimorgun. Sport 13. janúar 2023 09:30
Ríkasti maður heims gerir dóttur sína að forstjóra Dior Ríkasti maður heims, hinn franski Bernard Arnault, hefur skipað dóttur sína, Delphine Arnault, í embætti forstjóra tískuvöruhússins Dior. Viðskipti erlent 12. janúar 2023 08:51
Stjórn franska knattspyrnusambandsins setti forsetann til hliðar Stjórn franska knattspyrnusambandsins tók þá ákvörðun á fundi sínum í dag að leysa forseta sambandsins tímabundið frá störfum. Fótbolti 11. janúar 2023 13:38
Nokkrir særðir eftir árás á Gare de Nord í París Nokkrir eru særðir, enginn þó alvarlega, eftir að maður vopnaður eggvopni réðst að fólki á lestarstöðinni Gare du Nord í París í morgun. Erlent 11. janúar 2023 08:00
Drama í Frakklandi: Koma Zidane til varnar eftir vanvirðingu forsetans Ummæli Nöel Le Graët, forseta franska knattspyrnusambandsins, um þjálfarann og goðsögnina Zinedine Zidane hafa kallað á hörð viðbrögð víða af. Kylian Mbappé og spænska félagið Real Madrid hafa séð sig knúin til að láta forsetann heyra það. Le Graët hefur beðist afsökunar á ummælunum. Fótbolti 9. janúar 2023 15:00
Senda vestræna bryndreka til Úkraínu Yfirvöld Í Bandaríkjunum og Þýskalandi tilkynntu í gærkvöldi að ríkin myndu senda tugi bryndreka til Úkraínu og þjálfa áhafnir á þá á komandi vikum. Það var í kjölfar þess að Frakkar opinberuðu að þeir ætluðu að senda brynvarin farartæki. Erlent 6. janúar 2023 10:54
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar sagðir stefna á aðra herkvaðningu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er að undirbúa þjóð sína fyrir langvarandi átök í Úkraínu og Rússar eru sagðir vera að undirbúa aðra herkvaðningu. Bakhjarlar Úkraínumanna vinna að því að senda ný vopnakerfi til landsins en forðast enn að senda skriðdreka. Erlent 5. janúar 2023 14:00
Þúsundir hitameta slegin í Evrópu yfir áramótin Hiti var allt frá tíu til tuttugu gráðum yfir meðaltali fyrir árstíma víða á í Evrópu um áramótin. Met var slegin í þúsundatali, sums staðar með margra gráða mun í einstaklega óvenjulegum hlýindum. Erlent 3. janúar 2023 12:08
Reka sendiherra Frakklands úr landi og líta til Rússlands Herstjórn Búrkína Fasó hefur skipað sendiherra Frakklands að yfirgefa landið. Tvær vikur eru síðan að mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna í Búrkína Fasó var gert að yfirgefa landið. Herstjórnin hefur verið að styrkja samband Búrkína Fasó og Rússlands að undanförnu. Erlent 3. janúar 2023 10:08
Kynferðisbrotamenn óvelkomnir á verðlaunahátíð Skipuleggjendur César verðlaunanna í Frakklandi, sem eru helstu kvikmyndaverðlaunin þar í landi, hafa nú gefið það út að allir þeir sem eiga yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot eða hafa verið dæmdir fyrir slík brot séu ekki velkomnir á hátíðina sem haldin verður í næsta mánuði. Erlent 3. janúar 2023 07:27
Banna einnota matvælaumbúðir á skyndibitastöðum eftir áramót Bann við einnota umbúðum á skyndibitastöðum tekur brátt gildi í Frakklandi. Skyndibitastöðum mun ekki vera heimilt að framreiða mat í einnota umbúðum fyrir viðskiptavini sem ætla sér að borða á staðnum í stað þess að taka matinn með sér heim. Viðskipti erlent 29. desember 2022 15:47
Átök eftir mannskæða skotárás í París Lögregluþjónar beittu táragasi gegn mótmælendum sem komu saman í París í dag eftir að eldri maður skaut þrjá til bana og særði þrjá til viðbótar í menningarmiðstöð Kúrda í borginni. Þegar innanríkisráðherra Frakklands mætti á vettvang braust út mikil reiði meðal fólks sem hafði komið þar saman. Erlent 23. desember 2022 16:59
Meira en hundrað ára hefð út um gluggann: Tour de France endar ekki í París 2024 Frakklandshjólreiðarnar eða Tour de France eins og flestir þekkja þær hafa endað í París í meira en hundrað ár. Það verður hins vegar breyting á þeirri aldarhefð sumarið 2024. Sport 23. desember 2022 14:02
Tveir látnir eftir skotárás í París Tveir eru látnir og fjórir særðir eftir skotárás í miðborg Parísar. Erlent 23. desember 2022 12:12
„Höggorminum“ sleppt úr fangelsi í Nepal Franska raðmorðingjanum Charles Sobhraj verður senn sleppt úr fangelsinu í Nepal þar sem hann hefur dvalið í nær tuttugu ár. Honum hefur verið skipað að snúa aftur til Frakklands. Erlent 22. desember 2022 08:04
Karim Benzema hættur í franska landsliðinu Karim Benzema tilkynnti það í dag að hann hefur spilað sinn síðasta landsleik fyrir Frakkland. Fótbolti 19. desember 2022 15:06
Mbappé nennti ekkert að tala við Macron eftir leik Emmanuel Macron Frakklandsforseti reyndi margoft að hughreysta Kylian Mbappé eftir úrslitaleik HM þar sem Frakkar töpuðu fyrir Argentínumönnum í vítaspyrnukeppni. Mbappé gaf hins vegar lítið fyrir atlot forsetans. Fótbolti 19. desember 2022 12:00
Benzema neitaði að fara um borð í forsetaflugvél Emmanuel Macron Karim Benzema meiddist í aðdraganda heimsmeistaramótsins og gat ekki tekið þátt með Frökkum á mótinu. Frakkland leikur til úrslita í dag gegn Argentínu. Karim Benzema hafnaði boði forseta Frakklands um að fara í forsetaflugvél til Katar og sjá úrslitaleikinn. Fótbolti 18. desember 2022 10:00
Tíu látnir eftir eldsvoða skammt frá Lyon Tíu eru látnir, þar af fimm börn, eftir eldsvoða sem varð í átta hæða íbúðahúsi í úthverfi frönsku stórborginnarinnar Lyon í austurhluta landsins í nótt. Erlent 16. desember 2022 06:41
Frakkland í úrslit á nýjan leik Ríkjandi heimsmeistarar Frakklands eru komnir í úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta sem nú fer fram í Katar. Frakkland lagði spútniklið Marokkó 2-0 í undanúrslitum. Fótbolti 14. desember 2022 21:00