Tíska og hönnun

Tískuvikan í París: Rihanna sann­kallaður senu­þjófur

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stórstjarnan Rihanna mætti óvænt á vor/sumar 2024 hátískusýningu tískurisans Christian Dior í París í dag.
Stórstjarnan Rihanna mætti óvænt á vor/sumar 2024 hátískusýningu tískurisans Christian Dior í París í dag. Stephane Cardinale - Corbis/Corbis via Getty Images

Það ætlaði allt að verða vitlaust þegar að tónlistarkonan, athafnarkonan og stórstjarnan Rihanna mætti óvænt á tískusýningu Dior í París fyrr í dag og stal senunni. 

París iðar af hátísku, menningu og glamúr sem aldrei fyrr þessa dagana í tilefni af Haute Couture tískuvikunni fyrir vor og sumarlínur tískuhúsanna 2024. 

Gestir Dior sýningarinnar urðu heldur betur spenntir fyrir nærveru Rihönnu ef marka má Instagram færslu breska Vogue um sýninguna. 

Rihanna klæddist púffuðum svörtum jakka í stíl við pils frá hönnun Dior við támjóa hvíta hæla og glæsilegt silfurskart. Til að fullkomna klæðaburðinn var hún með gríðarstóra derhúfu við í svörtum lit. 

Rihanna er með frægustu tónlistarkonum heimsins og ætlaði allt að verða vitlaust þegar hún mætti á Dior sýninguna í dag. Stephane Cardinale - Corbis/Corbis via Getty Images

Viðburðurinn var að sjálfsögðu stjörnum prýddur og voru leikkonurnar Glenn Close, Anya Taylor-Joy og Elizabeth Debicki meðal gesta sem nutu þess að upplifa nýjustu tískulínu hönnuðarins Mariu Grazia Chiuri fyrir Dior. 

Þá var sjóðheiti tískurisinn Schiaparelli einnig með sýningu í dag en segja má að tískuhúsið hafi brotið Internetið í fyrra með frumlegum flíkum þar sem dýrahöfuð voru í forgrunni. 

Gestalistinn þar var ekki af verri endanum og má meðal annars nefna að Jennifer Lopez, Zendaya og Hunter Schafer sátu í fremstu röð. 

Hönnun Schiaparelli þykir einstaklega framúrstefnuleg og rokkaði Jennifer Lopez mjög svo einstök gleraugu á sýningu tískuhússins fyrr í dag. Arnold Jerocki/Getty Images

Tengdar fréttir

Ís­lensk fyrir­sæta á­berandi á tísku­pöllum Mílanó

Íslenska fyrirsætan Alísa Helga Svansdóttir hefur verið að gera það gott í tískuheiminum en hún er búsett á Ítalíu um þessar mundir. Hún hefur verið áberandi á tískuvikunni í Mílanó sem kláraðist í gær en blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá.

Mikil upp­­lifun að vera upp­­stríluð á tísku­viku með ljós­­myndara á eftir sér

Grafíski hönnuðurinn Embla Óðinsdóttir elskar tísku og notar hana ítrekað til að tjá sína líðan. Embla, sem er búsett í Kaupmannahöfn, segir erfitt að velja sína uppáhalds flík þar sem nánast öll fötin hennar eru í uppáhaldi en gerði þó mögulega bestu kaup sögunnar eitt sinn á Akureyri þegar hún keypti leðurjakka og loðvesti saman á 700 krónur. Embla er viðmælandi vikunnar í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×